Góðar göngur og fín veiði í Elliðaánum Karl Lúðvíksson skrifar 28. júní 2017 13:37 Oliver Jónasson með maríulaxinn sinn úr Elliðaánum. Mynd: Jónas Örn
Veiðin í Elliðaánum fer vel af stað og virðast göngur í hana vera með ágætis móti sem gefur góðar vonir fyrir framhaldið í sumar. Opnunin var ágæt eins og greint hefur verið frá og síðan þá hefur verið ágæt veiði og skot af göngum sem koma inn í ánna haldið veiðimönnum vel uppteknum. Eins og venjulega er mikið líf í Sjávarfossi en Teljarastrengur er líka vel setinn af laxi. Lax liggur víða á svæðinu frá Kerlingaflúðum að Ullarfossi og eins eru veiðimenn farnir að sjá laxa ofan stíflu við Árbæjarhyl, Breiðholtsstrengi og Hundasteinum. Elliðaárnar eru líklega eitt af þeim veiðisvæðum sem eru mikið sótt og sérstaklega af fjölskyldufólki sem er að koma ungum veiðimönnum á bragðið. Áinn er þægileg og auðveld fyrir byrjendur og það er líklega einsdæmi í heiminum að hafa jafn góða laxveiðiá í miðri borg. Oliver Jónasson var við veiðar ásamt föður sínum Jónasi Erni og í þeirri ferð náði Óliver maríulaxinum sínum eins og sést á meðfylgjandi mynd en en það eru líklega fáar ár sem gefa jafn margar maríur og Elliðaárnar síðustu áratugina.
Mest lesið 19 laxa dagur í Jöklu Veiði Litlar breytingar á listanum í veiðiánum Veiði Sala veiðileyfa mjög góð hjá Hreggnasa Veiði 30 laxar á tvær stangir í síðasta holli Veiði Töluvert líf í Gljúfurá í Borgarfirði Veiði Bleikjuveiðin búin að vera fín við Ásgarð Veiði 11 ára 20 punda sjóbirtingur Veiði Veiðin ekki búin í Elliðavatni Veiði Haustveiðin góð í Ytri Rangá Veiði Góð opnun í Laxárdalnum Veiði