Katar mun sækjast eftir skaðabótum vegna viðskiptaþvinganna nágrannaríkjanna Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 9. júlí 2017 23:30 Ríkissaksóknari Katar, Ali bin Fetais al-Marri á blaðamannafundinum þar sem hann lýsti yfir áætlunum stjórnvalda. Vísir/AFP
Yfirvöld í Katar tilkynntu í dag að þau muni leita réttar síns vegna viðskiptaþvinganna fjögurra Arabaríkja sem skilið hafa landið eftir einangrað. Guardian greinir frá. Um er að ræða Sádí-Arabíu, Sameinuðu arabísku furstadæmin, Barein og Egyptaland en löndin fjögur tilkynntu í síðasta mánuði ásamt Jemen að þau hefðu slitið stjórnmálasambandi við Katar vegna meints stuðnings Katara við hryðjuverkahópa. Mestu munar um Sádí-Arabíu en Katar er staðsett á skaga og á aðeins landamæri að því ríki. Þá tilkynntu ríkin einnig umræddar viðskiptaþvinganir sem Katarar vilja nú fá bætur vegna en viðskiptaþvinganirnar hafa einnig náð til flutninga á fólki og hefur landamærum til Katar frá Sádí-Arabíu verið lokað og því erfitt að koma vörum til landsins. Ríkissaksóknari Katar, Ali bin Fetais al-Marri, segir að yfirvöld þar í landi muni krefja ríkin fjögur um miskabætur vegna aðgerða sinna fyrir hönd fyrirtækja í landinu sem hafi stórskaðast vegna viðskiptaþvingananna. Sett verður upp sérstök aðgerðarmiðstöð til þess að taka á móti kröfum fyrirtækjaeigenda í Katar. Ríkin fjögur hafa sjálf lagt fram eigin kröfur á hendur stjórnvöldum í Katar um miskabætur vegna þess sem þau kalla „afskipti stjórnvalda í Katar af innanlandsmálum þeirra.“ Utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Rex Tillerson, mun heimsækja Arabíuskaga næstkomandi mánudag en hann vonast til þess að geta miðlað málum á milli deiluaðila í samstarfi með Kúveit sem farið hefur fyrir því verkefni að undanförnu.
Tengdar fréttir Sádi Arabía fundar með bandamönnum í Kaíró Mánuður er nú síðan Persaflóaríkin fjögur sem koma að fundinum slitu stjórnmála- og viðskiptasambandi við Katar. 5. júlí 2017 06:56 Katarar fá gálgafrest Sádi-Arabía, auk þriggja annarra Arabaríkja, framlengdi í gær frestinn sem Katarar hafa til þess að svara þrettán kröfum ríkjanna um breytingar á stjórnarháttum. Fresturinn átti að renna út í gær en var framlengdur um tvo sólarhringa. 4. júlí 2017 07:00 Mest lesið Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Eyvindur P. Eiríksson látinn Innlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Ákærður fyrir að brjóta á börnum Erlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Erlent Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Fleiri fréttir Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Sjá meira
Sádi Arabía fundar með bandamönnum í Kaíró Mánuður er nú síðan Persaflóaríkin fjögur sem koma að fundinum slitu stjórnmála- og viðskiptasambandi við Katar. 5. júlí 2017 06:56
Katarar fá gálgafrest Sádi-Arabía, auk þriggja annarra Arabaríkja, framlengdi í gær frestinn sem Katarar hafa til þess að svara þrettán kröfum ríkjanna um breytingar á stjórnarháttum. Fresturinn átti að renna út í gær en var framlengdur um tvo sólarhringa. 4. júlí 2017 07:00