Geirsgötu lokað í fjóra daga frá föstudagsmorgni Heimir Már Pétursson skrifar 5. júlí 2017 20:00
Ein mesta umferðargata borgarinnar, Geirsgata, verður lokuð í fjóra daga frá klukkan níu að morgni næst komandi föstudags til mánudags. Gerð verður ný hjáleið á Geirsgötu við Hafnartorg svo hægt sé að byggja hluta bílakjallara sem mun ná allt frá Ingólfstorgi að Hörpu. Á loftmyndum í þessari frétt Stöðvar 2 sjáum við framkvæmdasvæðið og núverandi hjáleið um Geirsgötuna ásamt hluta Geirsgötunnar eins og hún mun liggja í framtíðinni yfir hluta bílakjallarans. En þegar framkvæmdum lýkur verða til ný gatnamót eins og sést á meðfylgjandi mynd með útsýni frá Arnarhóli.þegar framkvæmdum lýkur verða til ný gatnamót með útsýni frá Arnarhóli.Grafík/Stöð 2Nýja gatan verður með tveimur akreinum í báðar áttir með byggingar á Hafnartorgi á aðra hönd og byggingar á Hörpureitnum á hina. Á korti sjáum við merkt með rauðum lit hvar Geirsgatan verður lokuð allt frá klukkan 09:00 á föstudagsmorgun til mánudags. Lokað verður frá gatnamótum Tryggvagötu og Geirsgötu að Hörpu en hægt verður að fara um Tryggvagötu, Hverfisgötu og Ingólfsstræti niður á Skúlagötu og þaðan út á Sæbrautina úr vestri á meðan. En skipulagsyfirvöld beina því til fólks að fara einnig um Hringbrautina til að létta umferðina um miðborgina þar til Geirsgatan verður opnuð aftur. Og þegar nýr hluti hennar verður að fullu tilbúinn færist umferð á svæðinu loksins í eðlilegt horf.Gerð verður ný hjáleið á Geirsgötu við Hafnartorg svo hægt sé að byggja hluta bílakjallara sem mun ná allt frá Ingólfstorgi að Hörpu.Grafík/Stöð2
Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Sjá meira