Vaknaði með höfuðið í kjafti bjarnar Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 10. júlí 2017 08:31 Pilturinn slapp með minniháttar áverka. vísir/getty
Ungur starfsmaður tjaldbúða í Colorado í Bandaríkjunum vaknaði á heldur óvenjulegan, en jafnframt óhugnanlegan, hátt í gærmorgun. Pilturinn vaknaði við brakhljóð og þegar hann opnaði augun kom í ljós að höfuð hans var fast í kjafti svartbjarnar. Hann slapp með minniháttar áverka. Pilturinn er nítján ára en búðirnar eru fyrir ungmenni á aldrinum 12 til 13 ára. Haft er eftir honum á vef Guardian að öðru starfsfólki hafi tekist að styggja dýrið með hrópum og köllum. Áður hafi björninn hins vegar náð að draga sig um þrjá og hálfan metra út úr tjaldinu. „Ég hugsa að brakhljóðin séu þegar tennurnar nudduðust inn við höfuðkúpuna,“ er haft eftir piltinum, sem kallaður er Dylan. Sem fyrr segir slapp Dylan með skrekkinn, sem og aðrir í tjaldbúðunum. Fram kemur á Guardian að svartbirnir séu almennt ekki árásargjarnir, en að þeir hafi upp á síðkastið ráðist á fólk í vesturhluta Bandaríkjanna, oftast í þeim tilgangi að verja ungviði sín.
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Fleiri fréttir Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Sjá meira