Leikjavísir

Pokémon Go-spilarar brjálaðir vegna sambandsleysis

Kjartan Kjartansson skrifar
Aðdáendur Pokémon Go önnum kafnir við að leita að nýjum fígúrum.
Aðdáendur Pokémon Go önnum kafnir við að leita að nýjum fígúrum. Vísir/EPA
Hugbúnaðarfyrirtækið Niantic hefur beðið aðdáendur snjallsímaleiksins vinsæla Pokémon Go afsökunar eftir að fyrsta hátíðin tileinkuð leiknum leystist upp þegar sambandsleysi gerði leikmönnum ókleift að spila hann.

Pokémon Go Fest fór fram í Chicago á laugardag og höfðu æstir aðdáendur leiksins beðið í röð í margar klukkunstundir, að sögn The Guardian. Vonuðust þeir til að koma böndum á pokémoninn sjaldgæfa Lugia.

Ekki fór þó betur en svo að farsímakerfið og vefþjónn leiksins hrundu vegna álagsins. Því gátu aðdáendurnir ekki spilað leikinn á hátíðinni.

Niantic hefur boðist til að endurgreiða þeim sem höfðu borgað sig inn aðgangseyrinn og gefa þeim Pokécoins, gjaldmiðil leiksins, að andvirði hundrað dollara. Þá ætlar fyrirtækið að gefa öllum þeim sem voru skráðir Lugia.

Ár er liðið frá því að Pokémon Go kom fyrst út en leikurinn hefur notið gríðarlegra vinsælda um allan heim.

Á myndbandinu hér fyrir neðan má sjá gesti á Pokémon Go Fest baula á framkvæmdastjóra Niantic.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.