Ólafía lék lokahringinn frábærlega í dag 23. júlí 2017 16:20 Ólafía Þórunn lék lokahringinn frábærlega í dag visir/getty
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR, er í fullu fjöri á LPGA mótaröðinni. Ólafía lék síðasta hringinn sinn í dag á Marathon Classic mótinu sem fram fer í Sylvania í Ohio-fylki í Bandaríkjunum. Þetta er 14. mótið sem Ólafía er að leika á tímabilinu á sterkustu mótaröð heims. Ólafía fór fyrstu níu holurnar á 31 höggum sem er þremur höggum undir pari. Hún lék svo seinustu holurnar á 36 höggum og endaði lokahringinn á 67 höggum sem er fjórum höggum undir pari. Glæsilega gert hjá Ólafíu. Hún var með sex fugla í dag, 10 pör og fékk tvo skolla. Þetta var lang besti hringur Ólafíu á þessu móti en hún lék hina þrjá hringina á 71, 70 og 72 höggum. Ólafía situr eins og er í 42. sæti á mótinu en þó eiga kylfingar eftir að klára hringina sína og gæti því staða hennar breyst. Hægt er að fylgjast með stöðutöflu mótsins hér.
Golf Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira