Norður-Kórea sögð hafa náð mikilvægum áfanga Samúel Karl Ólason skrifar 8. ágúst 2017 18:09 Frá nýlegu tilraunaskoti í Norður-Kóreu. Vísir/AFP
Yfirvöld í Norður-Kóreu hafa þróað og framleitt kjarnorkuvopn sem koma megi fyrir í langdrægum eldflaugum. Um er að ræða mikilvægt skref í kjarnorku- og eldflaugaáætlun einræðisríkisins. Þetta er mat starfsmanna leyniþjónusta Bandaríkjanna í leynilegri skýrslu, samkvæmt frétt Washington Post.Varnarmálaráðuneyti Japan hefur komist að sömu niðurstöðu. Í síðasta mánuði kom út skýrsla í Bandaríkjunum þar sem áætlað var að yfirvöld Norður-Kóreu hefðu byggt 60 kjarnorkusprengjur. Þar að auki hefur verið áætlað að Norður-Kóreumenn hafi náð gífurlegum árangri í þróun langdrægra eldflauga og að þeir gætu mögulega byggt örugga og áreiðanlega eldflaug sem hægt væri að skjóta að gervöllum Bandaríkjunum á næsta ári. Verulegum þrýstingi hefur verið beitt gagnvart Norður-Kóreu, en yfirvöld þar hafa gefið í skyn að þeir muni ekki láta undan. Yfirvöld Bandaríkjanna hafa miklar áhyggjur af þróuninni og hefur Donald Trump, forseti, heitið því að Norður-Kóreu verði ekki gert kleift að ógna Bandaríkjunum með kjarnorkuvopnum. Undanfarnar vikur hafa tvær tilraunir með langdrægar eldflaugar verið gerðar í Norður-Kóreu.
Norður-Kórea Mest lesið Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Erlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Innlent Fleiri fréttir Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Sjá meira