Sjálfbær þróun og verndun lífríkis verði leiðarljós fiskeldis Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 23. ágúst 2017 16:23
Sátt um framtíðaruppbyggingu fiskeldis á Íslandi veltur á að sjálfbær þróun og vernd lífríkis verði höfð að leiðarljósi, samkvæmt skýrslu starfshóps sjávarútvegsráðherra um stefnumótun í fiskeldi sem var kynnt í dag. Í tilkynningu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins kemur fram að þetta sé jafnframt kjarninn í samkomulagi Landssambands fiskeldisstöðva, Landssambands veiðifélaga, umhverfis- og auðlindaráðuneytisins og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins. Starfshópurinn telur mikilvægt að íslensku fiskeldi séu sköpuð bestu möguleg skilyrði til uppbyggingar og verði þannig sterk og öflug atvinnugrein. Með hagfelldum rekstrarskilyrðum megi byggja upp fiskeldi á svæðum sem henta til slíks rekstrar og efla þannig atvinnulíf og byggð í landinu. Að sama skapi telur starfshópurinn mikilvægt að stuðla að ábyrgu fiskeldi þar sem sjálfbær þróun og vernd lífríkis séu höfð að leiðarljósi. Einungis þannig muni nást sátt um framtíðaruppbyggingu fiskeldis. Starfshópurinn bendir á að slík sátt helstu hagsmunaaðila sé ekki einungis nauðsynleg fyrir uppbyggingu fiskeldis heldur skapi hún markaðsleg sóknarfæri fyrir íslenskt fiskeldi til framtíðar, þar sem byggt sé á umhverfisvænni ímynd. Því skuli rannsóknir ráða för við uppbyggingu fiskeldis - og í þeim tilfellum þar sem óvissa ríki um áhrif fiskeldis á vistkerfi eða umhverfi verði niðurstöður rannsókna lagðar til grundvallar ákvörðunum stjórnvalda. Í skýrslunni eru settar fram tillögur sem starfshópurinn telur rétt að komi til framkvæmda og lúta þær að flestum þeim þáttum sem varða uppbyggingu fiskeldis, þar á meðal auðlindagjaldi, áhættumati, erfðablöndun, leyfisveitingum, eftirliti og opinberri birtingu gagna.
Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira