Segir endurupptöku á Guðmundar- og Geirfinnsmálunum vera peningasóun Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 22. september 2017 21:00 Þekkt mynd frá réttarhöldunum. Óhætt er að fullyrða að Guðmundar- og Geirfinnsmálin hafi heltekið þjóðina á löngu tímabili. visir/bragi guðmundsson
Jón Gunnar Zoëga lögmaður var réttargæslumaður Valdimars Olsen sem sat saklaus í gæsluvarðhaldi grunaður um aðild að hvarfi Geirfinns Einarssonar. Jón Gunnar segir það peningasóun að taka upp málin að nýju fyrir dómstólum, enda sé það ljóst í hans huga að þau seku í málinu hafi verið dæmd. Þetta kom fram í þættinum Speglinum á Rás 1 í dag. Hann hefur enga trú á því að niðurstaðan breytist. „Það eru 15 dómarar búnir að fara yfir þetta mál og allir sammála um niðurstöðuna. Ég get ekki séð að það breytist neitt. Erla Bolladóttir fór fram á endurupptöku en hún var aldrei dæmd fyrir manndráp heldur aðeins meinsæri gegn fjórmenningunum og þátttöku í ráni frá Pósti og síma. Það er rétt að geta þess að þetta unga fólk voru engir englar. Þetta var landsliðið í smáglæpum á Íslandi og sakavottorð Sævars þegar hann var tekinn var þrjár síður. Auðvitað geta menn leiðst á rétta braut en ég tel fráleitt að eyða peningum í þetta,“ segir Jón Gunnar í Speglinum í dag.37 ár frá dómi í Hæstarétti Þann 22. febrúar 1980 féll dómur í Guðmundar- og Geirfinnsmálunum í Hæstarétti. Sævar Marinó Ciesielski var dæmdur í 17 ára fangelsi, Kristján Viðar Viðarsson í 16 ára fangelsi, Tryggvi Rúnar Leifsson í 13 ára fangelsi, Guðjón Skarphéðinsson í 10 ára fangelsi, Erla Bolladóttir í 3 ára fangelsi og Albert Klahn Skaptason í 12 mánaða fangelsi. Tryggvi Rúnar var eingöngu dæmdur fyrir aðild að morðinu á Guðmundi og Guðjón eingöngu fyrir aðild að morði Geirfinns. Albert var dæmdur fyrir að reyna að afmá sönnunargögn í máli Guðmundar og Erla fyrir rangar sakargiftir í Geirfinnsmálinu. Guðmundar og Geirfinnsmálið fyrir Hæstarétti í janúar 1980.Ljósmyndasafn ReykjavíkurMargir hafa í gegnum tíðina haft efasemdir um að dómarnir sem ungmennin fengu fyrir að verða Gumundi og Geirfinni að bana hafi verið réttlátir og mikið hefur verið rætt um að lögreglan hafi beitt sakborningana miklum þrýstingi við yfirheyrslur. Endurupptökunefnd hefur farið fram á að málin verði rannsökuð á nýjan leik.Efast um sögur af þrýstingi lögreglu Valdimar Olsen sat í gæsluvarðhaldi í um hundrað daga árið 1976 ásamt þeim Magnúsi Leopoldssyni, Sigurbirni Eiríkssyni og Einari Bollasyni. Enginn þeirra var dæmdur fyrir aðild að hvarfi Geirfinns og var Erla Bolladóttir, systir Einars, síðar dæmd fyrir að bendla fjórmenningana ranglega við málið. Hennar kröfu um endurupptöku var hafnað en hún hefur alltaf haldið því fram að hafa bendlað þá við málið vegna þrýstings frá lögreglunni. Jón Gunnar telur af og frá að það standist. „Erla Bolladóttir var utan fangelsis vegna góðvildar lögreglunnar - hún átti lítið barn og var þess vegna sleppt. Hún hringir í dómarann og segir að það séu alltaf einhverjir menn að hringja í sig og hóta sér ef hún kjafti frá. Þegar dómarinn spyr hana hvers vegna hún haldi að þetta sé segir hún að það hljóti að vera út af Geirfinnsmálinu. Þá er hún tekin til yfirheyslu og spurð um þetta. Þar ber hún Valdimar Olsen og hina þrjá, og fleiri reyndar, þeim sökum að eiga þátt í þessu. Lögreglan gat því ekki beitt neinum þrýstingi á hana, því hún var ekki einu sinni í fangelsi,“ segir Jón Gunnar í Speglinum. Hann hefur enga trú á því að lögreglan hafi beitt harðræði við yfirheyrslur eins og haldið hefur verið fram en hann geti minna fullyrt um hvort fangaverðirnir hafi gert það. Sævar Ciesielski staðhæfði meðal annars að fangaverðir hafi barið í veggi fangaklefans og haft kveikt ljós í klefanum til að halda fyrir honum vöku.Alls voru sex sakfelldir fyrir aðild að hvarfi Guðmundar Einarssonar og Geirfinns Einarssonar.Vísir„Ég þekki ekki þessa meintu atlögu fangavarðanna að Sævari Ciesielski. Það var hins vegar orðinn pirringur út í Sævar og þetta fólk því þau voru sífellt að breyta framburði sínum, drógu eitt til baka og viðurkenndu það svo daginn eftir. Hvað þessir fangaverðir hafa tekið upp hjá sjálfum sér get ég ekki sagt frá. Það getur vel verið að það hafi verið en það sneri þá bara að Sævari, ekki Erlu Bolladóttur. En auðvitað vildu menn fá upplýsingar um hvað hefði orðið um lík þessara manna.“Áhyggjuefni ef niðurstaðan yrði önnur Hann segir þó að einstakir fangaverðir hafi haft einhverjar hugmyndir að þau dæmdu hafi verið aðalmennirnir í málinu og að skjólstæðingur hans, Valdimar Olsen, hafi fengið að finna fyrir því. „Hann vissi fyrst ekki af hverju hann var hnepptur í gæsluvarðhald. Hann var tekinn klukkan fimm að morgni, settur inn í klefa og sagt við hann að hann væri tengdur mannshvarfi. Hann kannaðist ekki við neitt en þeir voru að reyna að fiska eitthvað upp úr honum sem tengdi hann við þetta mál. Honum var hins vegar aldrei sagt um hvað það snerist. Eina nóttina vaknaði hann og þá stendur yfir honum fangavörður og segir þessa setningu við hann: „Valdimar minn, þú skalt bara viðurkenna þetta brot, ég þekki glæpamenn þegar ég sé þá!“ Þetta bendir til þess að þessir fangaverðir hafa verið í einhverjum öðrum heimi.“ Jón Gunnar hefur heldur enga trú á að niðurstaðan breytist eftir að þau verða tekin fyrir á ný í Hæstarétti. „Það yrði mikið áhyggjuefni hjá mér ef þannig yrði. En það er alveg sama þó að niðurstaðan í Hæstarétti verði sú sama og áður. Fólk vill áfram trúa því að þarna hafi verið saklaus ungur maður tekinn og pyntaður til sagna, sem er alfarið rangt.“
Guðmundar- og Geirfinnsmálin Tengdar fréttir Nýjar hliðar Geirfinnsmáls hugsanlegar Undirbúningur fyrir málsmeðferð í Hæstarétti er í fullum gangi. Margvísleg ný gögn geta enn ratað inn í málið. Mikið undir fyrir réttarríkið segir nýskipaður verjandi Sævars. 4. september 2017 06:00 Erla Bolladóttir: „Innst inni vissi ég að þetta gerðist ekki“ Erla Bolladóttir, sem var ein sakborninga í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu, segist hafa beðið Sævar Ciesielski afsökunar á sínum hlut í máli hans áður en hann lést. 4. ágúst 2017 19:15 Mest lesið Reksturinn í uppnámi og uppsagnir fyrirhugaðar Innlent Trump „mjög reiður“ út í Pútín Erlent Áfram talinn vanhæfur til að taka sæti í ráðinu Innlent Le Pen sakfelld fyrir fjársvik og bannað að bjóða sig fram til forseta Erlent Stór hópur fullorðins fólks á Íslandi lifir eins og börn Innlent „Margir sem ég þekki hafa þurft að yfirgefa heimili sín“ Erlent Þrír fundust látnir í Noregi Erlent Trúverðugleiki forsætisráðherra sé í húfi Innlent Fordæma árás á sjúkraliða Erlent Hallarekstur stöðvaður á næstu tveimur árum Innlent Fleiri fréttir Stór hópur fullorðins fólks á Íslandi lifir eins og börn Hallarekstur stöðvaður á næstu tveimur árum Áfram talinn vanhæfur til að taka sæti í ráðinu Bein útsending: Ráðherra kynnir fjármálaáætlun Reksturinn í uppnámi og uppsagnir fyrirhugaðar Trúverðugleiki forsætisráðherra sé í húfi Grindvíkingar segjast vera Excel skjöl í ráðuneytum í Reykjavík Grænlandsheimsókn varaforseta og þrumuveður Þremur vísað út af Landspítalanum Stemningin farin ári fyrir stjórnarslitin Arftaki 757-þotunnar ekki í boði frá Boeing Eina fjallamennskunámið leggst að óbreyttu af Taldi 150 holur á stuttum vegakafla á Suðurlandi „Það er voða hentugt að kenna okkur um þetta en við erum alsaklaus“ Ólögmæt gjaldtaka gæti kostað ríkið milljarða Bílar á víð og dreif hindruðu aðgengi slökkviliðsbíla Þungt yfir Bangkok og lögsókn vegna olíugjalda Endurreisn VG og njósnir á Íslandi Reyndi að stinga lögreglu af á torfæruhjóli Björguðu á þriðja tug af Eyjafjallajökli Ungir skátar sæmdir forsetamerkinu Ný gæðavottun stuðli ekki að mismunun Mikið líf og fjör á Íslandsleikunum á Selfossi Íslendingur á Grænlandi: „Það heyrist ekki múkk í neinum“ Hestar á vappi um Kórana Tilkynnt um ungmenni sem framdi rán og líkamsárás Spenna á Grænlandi og íslenskumiði í glugga leigubíla Bæjarstjórnin gagnrýnir skýrslu um hvernig eigi að byggja upp bæinn Roðsnakk frá 19 ára frumkvöðli slær í gegn Tímaspursmál hvenær Bandaríkin snúi sér að Íslandi Sjá meira
Nýjar hliðar Geirfinnsmáls hugsanlegar Undirbúningur fyrir málsmeðferð í Hæstarétti er í fullum gangi. Margvísleg ný gögn geta enn ratað inn í málið. Mikið undir fyrir réttarríkið segir nýskipaður verjandi Sævars. 4. september 2017 06:00
Erla Bolladóttir: „Innst inni vissi ég að þetta gerðist ekki“ Erla Bolladóttir, sem var ein sakborninga í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu, segist hafa beðið Sævar Ciesielski afsökunar á sínum hlut í máli hans áður en hann lést. 4. ágúst 2017 19:15