Snjór og krapi í kortunum Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 3. október 2017 10:04 Það verður kalt norðanlands í nótt og á morgun og þá sérstaklega upp til fjalla. veðurstofa íslands
Það er snjór og krapi í kortunum til fjalla norðan lands í nótt og á morgun ef marka má hugleiðingar veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Þar segir að í dag og á morgun muni kólna dálítið auk þess sem það mun hvessa og bæta í úrkomuna um landið norðanvert. Líklegt er að með allhvassri norðanátt í nótt og á morgun og hita um 2 til 5 stig á lálendi fyrir norðan að úrkoma fyrir ofan 200 metra yfir sjávarmáli falli þá sem slydda eða snjókoma. Því getur myndast krapi á fjallvegum á Norðurlandi og jafnvel austur á Hérað. Það er því vissara fyrir vegfarendur að hafa það í huga. Undir helgina er síðan spáð hlýnandi veðri á ný.Veðurhorfur á landinu í dag og næstu daga:Norðvestan og vestan 3-10 m/s. Skýjað og væta öðru hverju, en léttskýjað suðaustanlands. Norðaustan 5-13 eftir hádegi og víða rigning norðanlands og rigning um tíma syðst síðdegis, annars þurrt. Bætir í vind og úrkomu norðanlands seint í kvöld, norðvestan 10-18 N- og A-til í nótt og á morgun, en annars mun hægari. Rigning á N- og A-landi og slydda til fjalla, en yfirleitt þurrt um landið S- og V-vert. Hiti 2 til 10 stig, svalast NA-til á morgun.Á fimmtudag:Vestlæg átt, 3-8 m/s. Léttskýjað að mestu um landið austanvert, annars skýjað en þurrt. Hiti 5 til 12 stig að deginum, hlýjast suðaustanlands.Á föstudag:Suðaustlæg átt, hlýnandi veður og fer að rigna suðvestanlands um kvöldið, annars víða bjartviðri.Á laugardag og sunnudag:Suðlæg átt og rigning eða skúrir, en bjartviðri að mestu norðaustantil. Hiti 6 til 11 stig.Á mánudag:Útlit fyrir suðaustanátt með talsverðri vætu sunnantil á landinu, en úrkomulítið fyrir norðan og fremur milt.
Veður Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Fleiri fréttir Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Sjá meira