Menning

Sonur Kristins Sigmundssonar í Salnum

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Þeir Bushakevits og Jóhann hafa áður unnið saman og ætla að halda því áfram.
Þeir Bushakevits og Jóhann hafa áður unnið saman og ætla að halda því áfram.
Jóhann Kristinsson baritón kemur fram í Salnum í kvöld klukkan 20 ásamt Ammiel Bushakevits, píanista. Á efnisskrá tónleikanna verða lög eftir Robert Schumann og Gustav Mahler.

Jóhann á ekki langt að sækja sönghæfileikana því hann er sonur hins góðkunna Kristins Sigmundssonar. Raddsvið þeirra er vissulega ólíkt, Kristinn er með sína djúpu bassarödd en Jóhann háa barítónrödd.

Jóhann hefur undanfarið vakið athygli í Þýskalandi fyrir söng sinn. Hann lenti í þriðja sæti í keppninni Das Lied í Heidelberg og hlaut líka sérstök verðlaun áheyrenda. Hann útskrifaðist með hæstu einkunn úr tónlistarháskólanum „Hanns Eisler“ í Berlín í sumar og starfar nú í Óperustúdíói Ríkisóperunnar í Hamborg.

Ammiel Bushakevitz er líka margverðlaunaður fyrir píanóleik. Fékk meðleikaraverðlaunin í Wigmore Hall keppninni og einnig í Das Lied keppninni. Hann var einn af síðustu nemendum Dietrichs Fischer-Dieskau.

Tónleikarnir tilheyra Tíbrá, tónleikaröð Salarins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.