„Lítt markvert veður í vændum“ Stefán Ó. Jónsson skrifar 13. október 2017 07:15 Það verður blautt og hvasst næstu daga. Vísir/Anton
Veðurstofan varar við áframhaldandi vatnavöxtum á annesjum á Norðurlandi og þá sé þar aukin hætta á skriðuföllum. Einnig er búist við talsverðri eða mikilli rigningu eða slyddu á utanverðum Tröllaskaga um tíma í nótt. Þá verður úrkomusamt næsta sólarhringinn fyrir norðan á meðan um landið sunnan- og austanvert verður ágætis veður. Þótt ekki verði alveg samfelld rigning norðantil í dag, mun rigna nokkuð hressilega, einkum við ströndina. Lægðin sem þessu veldur mun svo fara af stað til austurs í kvöld og síðan halda til norðausturs. Vindstrengurinn frá henni mun ná inn á norðanvert landið ásamt úrkomuskilum. Þá mun kólna og því gæti náð að „slydda í byggð einnig,“ eins og það er orðað á vef Veðurstofunnar. „Einna helst er að sjá að austanverður Skagafjörður og Fljót fái mesta úrkomu í nótt en annars er úrkoman einkum bundin við annesin fyrir norðan. Fyrir hádegi á morgun, laugardag verða síðan skilin og vindstrengurinn kominn austur af landinu og lítt markvert veður í vændum fram yfir helgi,“ segir þar jafnframt.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ laugardag:Vestan og norðvestan 8-15 m/s, en 15-20 við N-ströndina fram eftir degi. Rigning eða slydda um landið norðanvert, en bjart með köflum sunnantil. Lægir og léttir til NV-til seinnipartinn, en um landið NA-vert um kvöldið. Hiti 1 til 8 stig, hlýjast á Suðausturlandi.Á sunnudag og mánudag:Hæg breytileg átt, en lengst af V 5-10 við NA-ströndina. Bjart með köflum, en lítilsháttar úrkoma vestantil. Hiti 2 til 7 stig yfir daginn, en líkur á næturfrosti, einkum inn til landsins.Á þriðjudag:Vaxandi suðaustanátt, fyrst suðvestantil. Suðaustan 8-18 um kvöldið, hvassast og rigning við S-ströndina. Hiti 0 til 5 stig N- og A-til, en 3 til 8 annars.Á miðvikudag:Ákveðin austlæg átt en mun hægari seinnipartinn. Rigningu um mest allt land og hiti 2 til 8 stig.Á fimmtudag:Útlit fyrir suðlæga átt og yfirleitt þurrt, en norðaustanátt og rigning NV-til. Hiti 1 til 8 stig, mildast syðst.
Veður Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira