Birgir Leifur nokkuð langt frá sæti meðal þeirra bestu Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 14. nóvember 2017 12:00 Birgir Leifur mundar pútterinn. vísir/daníel
Eftir þrjá hringi af sex er Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, í 130. sæti á lokaúrtökumóti Evrópumótaraðarinnar í golfi. Birgir Leifur er á samtals á fimm höggum yfir pari eftir hringina þrjá. Efsti maður er á þrettán höggum undir pari og því er Birgir nokkuð langt frá honum. 25 efstu kylfingar mótsins fá þáttökurétt á Evrópumótaröðinni. Sá sem er í 25. sæti eins og staðan er er á sjö höggum undir pari. Fari vel á hringjunum þremur sem eftir eru hjá Birgi gæti hann eygt von um að nálgast 25. sætið, en það verður að teljast ólíklegt það gangi eftir. Árangur Birgis á Áskorendamótaröðinni á þessu tímabili var mjög góður, þar sem hann vann meðal annars sitt fyrsta mót. Með því er Birgir nú þegar með keppnisrétt á nokkrum mótum á Evrópumótaröðinni á næsta tímabili og gæti fengið fleiri mót með góðum árangri á úrtökumótinu, þó hann nái ekki á meðal 25 efstu manna.
Golf Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira