Valdís Þóra fyrir neðan niðurskurðarlínuna eftir annan hring Tómas Þór Þórðarson skrifar 7. desember 2017 07:22 Valdís Þóra Jónsdóttir. Mynd/gsimyndir.net/Seth
Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur frá Akranesi, spilaði annan hringinn á Omega Dubai Ladies Classic-mótinu í golfi í nótt á einu höggi undir pari og er í heildina á tveimur höggum yfir eftir tvo hringi. Valdís Þóra fékk fjóra fugla á hringnum en þrjá skolla, þar af tvo skolla á fyrri níu holunum. Hún var sterkari á seinni níu þar sem hún fékk tvo fugla en aðeins einn skolla. Hún spilaði fyrstu tvo hringina samtals á 146 höggum eða tveimur höggum yfir pari og er einu höggi frá niðurskurðarlínunni eins og staðan er núna. Niðurskurðurinn miðast við eitt högg yfir pari og þarf Skagamærin því að vonast til að hlutirnir falli fyrir sig á lokametrum annars hrings. Valdís Þóra er örugg með sætið sitt á Evrópumótaröðinni á næsta ári þar sem hún er í 50. sæti styrkleikalistans en 80 efstu halda kortinu sínu á milli keppnistímabila.Staðan á mótinu.
Golf Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Þjálfari Hákons grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira