Lífið

Nepölsk ofurmenni við Everest

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ungir nepalskir burðarmenn vöktu aðdáun íslenska göngufólksins á degi hverjum.
Ungir nepalskir burðarmenn vöktu aðdáun íslenska göngufólksins á degi hverjum. Vísir/Vilhelm
Átján Íslendingar héldu í tveggja vikna göngu um Himalayafjöllin í október. Takmarkið voru grunnbúðir Mount Everest þaðan sem garpar í öðrum áhættuhópi halda af stað á leið sinni á topp hæsta fjalls heimsins. Ungir nepalskir burðarmenn vöktu aðdáun íslenska göngufólksins á degi hverjum.

Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var með myndavélina á lofti í fjöllunum.

Gangan í grunnbúðir hefst í þorpinu Lukla í um 2800 metrum og lýkur í um 5400 metrum. Mikilvægt er að göngufólk drekki vatn og nóg af því á hverjum degi, meðal annars til að vinna gegn hæðaveiki.

Hér að ofan má sjá mynd af nepalskri stelpu á gangi milli þorpa með hundruð plastflöskur á bakinu.


Sumir hlóðu meiru á bakið en aðrir. Tveir stálbitar, samanlagt 88 kíló að þyngd, á baki burðarmanns á leið til hins gullfallega þorps Gokyo. Vísir/Vilhelm
Flestir burðarmenn eru karlmenn í kringum tvítugt þótt finna megi fólk á öllum aldri. Þótt hinn hefðbundni burðarmaður hafi verið með 30-40 kíló á bakinu þekkist það að menn fari yfir hundrað kílóin.

Burðarmenn selja almennt vinnu sína per kíló. Margir burðarmenn stíga svo skrefið til aðstoðarleiðsögumanns en þá er nauðsynlegt að hafa náð þokkalegu valdi á enskunni.



Burðarmaður í Nepal með Nuptse í bakgrunni. Nuptse er einn fjölmargra glæsilegra tinda í fjallgarðinum, 7861 metrar á hæð.Vísir/Vilhelm
Takmarkið náðist á tólfta degi þar sem sjá mátti Everest gægjast upp á bak við fjöllin. Vegna stöðugra tilfærsla jökla og steina færast grunnbúðir Everest stöðugt lítilega til og frá.

Þær eru í um tveggja klukkutíma göngufæri frá þorpinu Gorakshep þar sem er gistiaðstaða fyrir ferðamenn en ekkert annað.


Þessi vösku drengir fylgdu okkur alla leið. Níu alls, hver bar farangur tveggja Íslendinga - um 30 kíló.Vísir/Vilhelm
Hetjurnar okkar. Drengirnir sem báru farangur lúxuslýðsins frá Íslandi á bakinu á degi hverjum, með bros á vör. Flestir voru með um 30 kíló á bakinu auk eigins farangurs.

Þeir luku dagleiðunum alltaf fyrr en Íslendingarnir sem voru með 5-10 kíló á bakinu. Sannkölluð nepölsk ofurmenni.







Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.