Lífið

Söngkona The Cranberries látin

Birgir Olgeirsson skrifar
Dolores O'Riordan féll skyndilega frá í London fyrr í dag.
Dolores O'Riordan féll skyndilega frá í London fyrr í dag. Vísir/Getty
Dolores ORiordan, söngkona írsku hljómsveitarinnar The Cranberries er látin 46 ára að aldri.

Talskona hennar tilkynnti fjölmiðlum ytra að O´Riordan hefði fallið skyndilega frá í London í dag.

Hljómsveitin The Cranberries var saman komin í London til að sinna stuttu upptökuferli í hljóðveri en dánarorsök söngkonunnar liggur ekki fyrir.

„Engar frekari upplýsingar er að fá að svo stöddu. Fjölskylda hennar er harmi slegin og hefur beðið um frið á þessum erfiðu tímum,“ segir í yfirlýsingu talskonunnar.

Seldu 40 milljónir platna

O´Riordan gekk til liðs við The Cranberries árið 1989 eftir að hafa séð auglýsingu í staðarblaði að hljómsveitina vantaði söngkonu. Bræðurnir Noel Hogan og Mike Hogan höfðu stofnað sveitina sem endaði á að selja rúmlega fjörutíu milljónir platna á heimsvísu með O´Riordan fremsta í flokki.



Dolores lætur eftir sig þrjú börn.Vísir/Getty
Lætur eftir sig þrjú börn

O
´Riordan lætur eftir sig þrjú börn sem hún átti með Don Burton, fyrrverandi stjórnanda tónleikaferða hljómsveitarinnar Duran Duran. Fyrsta barn þeirra Taylor Baxter fæddist 23. nóvember árið 1997, annað barnið Molley Leigh fæddist 27. janúar árið 2001 og það þriðja Dakota Rain 10. apríl árið 2005. 

O´Riordan og Burton skildu eftir tuttugu ára samband árið 2014. 

Bakmeiðsli settu strik í reikninginn

Árið 2017 tilkynnti hljómsveitin að hún ætlaði í tónleikaferð um Evrópu, Bretland og Bandaríkin. Í maí sama ár var hins vegar tilkynnt að hljómsveitinni þyrfti að aflýsa tónleikum á Evrópuleggnum vegna heilsubrest O´Riordan.

Á vef hljómsveitarinnar kom fram að hún ætti við bakmeiðsl að stríða sem aftraði henni frá því að koma fram á tónleikum. Rétt fyrir jól voru færðar þær fregnir af henni að hún væri orðin skárri og gæti farið að koma fram á tónleikum á ný.

O´Riordan gekk til liðs við The Cranberries árið 1989 eftir að hafa séð auglýsingu í staðarblaði að hljómsveitina vantaði söngkonu.Vísir/Getty
Söngkonan glímdi við geðhvarfaröskun og slapp við fangelsisrefsingu eftir að haf sýnt ógnandi hegðun í farþegaflugi árið 2014.

Frægðarsól The Cranberries skein hvað skærast á tíunda áratug síðustu aldar þar sem sveitin raðaði mörgum smellum á topp vinsældarlista en frægustu lög hennar má heyra hér fyrir neðan:

Zombie

Zombie kom út árið 1994 og er án efa eitt af þekktari lögum sveitarinnar. Lagið var samið árið 1993 til minningar um tvo drengi, þá Jonathan Ball og Tim Parry sem fórust í sprengingu IRA í Warrington árið 1993.

Ode to My Family

Ode to My Family var gefið út sama ár og Zombie en í því syngur Dolores um hvað hún þráði aftur einfaldleika æskunnar eftir að hafa slegið í gegn.  

Linger

Linger kom út árið 1993 og fjallar um fyrsta koss Dolores.

Dreams

Lagið Dreams kom út árið 1992 og náði töluverðum vinsældum. 

Margir hafa lýst yfir mikilli sorg vegna þessara tíðinda.

Þar á meðal breska sveitin Duran Duran:

Breski spjallþáttastjórnandinn James Corden lýsir því þegar hann hitti Dolores fimmtán ára gamall.

Írski tónlistarmaðurinn Hozier segir rödd O´Riordans hafa verið ógleymanlega:

Gullbarkinn Josh Groban er einn þeirra sem er harmi sleginn:

Líkt og margar stjörnur hafa minnst á þá er rödd O´Riordan ógleymanleg og má heyra það hvað best á þessari upptöku frá árinu 2012:






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.