Tækjabúnaður Hellisheiðarvirkjunar virðist hafa sloppið við skemmdir Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 13. janúar 2018 10:26 Eins og sjá má urðu nokkrar skemmdir á þaki stöðvarhússins. Vísir/Slökkviliðið höfuðborgarsvæðisins.
Orkuvinnsla í Hellisheiðarvirkjun er að komast í eðlilegt horf og viðgerðir á stöðvarhúsinu eru hafnar eftir eldsvoða í gær. Útlit er fyrir að tækjabúnaður hafi sloppið við skemmdir. Allt tiltækt lið slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og slökkviliðsins í Árnessýslu var kallað út í hádeginu í gær eftir að kviknaði í loftræstikerfi stöðvarhússins. Í tilkynningu frá Orku náttúrunnar segir að viðgerðir á húsinu hafi verið undirbúnar í gærkvöldi og hafist í morgun. „Tækjabúnaður virðist hafa sloppið við skemmdir og virðast þær bundnar við þak og rýmið undir því þar sem eldurinn kom upp,“ að þvíer segir í tilkynningunni. Jarðhitasýningin sem staðsett er í húsinu verður þó lokuð fram á næstu viku en tveir ferðamenn voru á sýningunni í húsinu þegar eldurinn kviknaði. Háþrýstivél sem sló út í eldsvoðanum var gangsett aftur í gærkvöldi. Þá er útlit fyrir að lágþrýstivél og varmastöð, sem slökkt var á í öryggisskyni meðan á slökkvistarfi stóð, verði gangsettar í dag. „Atburðurinn hefur því ekki áhrif á orkuafhendingu til almennings, hvorki á rafmagni né heitu vatni,“ segir í tilkynningunni. Lögreglan á Suðurlandi rannsakar upptök eldsins. Brunavarnir Árnessýslu stóðu vakt í nótt án þess að til tíðinda drægi.
Tengdar fréttir Eldur í Hellisheiðarvirkjun Slökkviliðsmenn hafa náð tökum á eldinum. 12. janúar 2018 11:44 Slökkvistarf gengur vel: „Það er alltaf gott að sjá ljósan reyk“ "Það er alltaf gott að sjá ljósan reyk,“ segir Haukur Grönli varaslökkviliðsstjóri Brunavarna Árnessýslu í samtali við fréttastofu fyrir utan stöðvarhús Hellisheiðarvirkjunar þar sem kviknaði eldur skömmu fyrir hádegi í dag. 12. janúar 2018 14:10 Slökkvistarfi lokið á Hellisheiði Slökkvistarfi er nú lokið á Hellisheiði en eldur kom upp í loftræstibúnaði Hellisheiðarvirkjunar laust fyrir hádegi í dag. 12. janúar 2018 17:51 Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fleiri fréttir Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Sjá meira
Slökkvistarf gengur vel: „Það er alltaf gott að sjá ljósan reyk“ "Það er alltaf gott að sjá ljósan reyk,“ segir Haukur Grönli varaslökkviliðsstjóri Brunavarna Árnessýslu í samtali við fréttastofu fyrir utan stöðvarhús Hellisheiðarvirkjunar þar sem kviknaði eldur skömmu fyrir hádegi í dag. 12. janúar 2018 14:10
Slökkvistarfi lokið á Hellisheiði Slökkvistarfi er nú lokið á Hellisheiði en eldur kom upp í loftræstibúnaði Hellisheiðarvirkjunar laust fyrir hádegi í dag. 12. janúar 2018 17:51