Samþykkja að hefja formlegar stjórnarmyndunarviðræður Atli Ísleifsson skrifar 12. janúar 2018 08:10 Angela Merkel Þýskalandskanslari er leiðtogi Kristilegra demókrata. Vísir/AFP
Kristilegir demókratar (CDU og CSU) og Jafnaðarmenn (SDP) í Þýskalandi náðu í morgun saman um að flokkarnir hefji formlegar viðræður um myndun meirihlutastjórnar í landinu. Þrír og hálfur mánuður eru nú liðinn frá því Þjóðverjar gengu til kosninga og enn hefur ekki tekist að mynda starfhæfan meirihluta. Angela Merkel kanslari sem fer fyrir Kristilegum demókrötum (CDU) sagði í gær að komið væri að úrslitastund í málinu. Fulltrúar flokkanna funduðu fram á morgun og þegar fundi var slitið sögðu einhverjir að enn væri nokkuð í land. Spiegel greinir hins vegar nú frá því að samkomulag sé í höfn um að hefja formlegar viðræður. Vitað er að flokkarnir séu á öndverðum meiði þegar kemur að ýmsum stórum málum. Sérstaklega skilur að í afstöðu Kristilegra demókrata í Bæjaralandi (CSU) og Jafnaðarmanna í skattamálum og málefnum innflytjenda. Þannig vilja Jafnaðarmenn auðvelda flóttafólki sem fengið hafa hæli að sameinast fjölskyldum sínum á ný. CSU vill hins vegar herða lög um innflytjendur. SPD hefur lagt mikinn þunga á að lagst verði í umbætur á sjúkratryggingakerfinu og þá vill flokkurinn breyta stefnu stjórnvalda í Evrópumálum.
Evrópusambandið Kosningar í Þýskalandi Þýskaland Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Forystan sé búin að missa klefann Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post Sjá meira