Menning

Rauði þráðurinn er ástin

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
"Ástin er svo flókið fyrirbæri,“ segir Charlotte.
"Ástin er svo flókið fyrirbæri,“ segir Charlotte. Vísir/Stefán
Rauði þráðurinn er ástin,“ segir Charlotte Böving um efni kabarettsins Ahhh… sem frumsýndur verður 9. febrúar í Tjarnarbíói. Þar mun leikhópurinn RaTaTam syngja, dansa og leika sér með texta Elísabetar Jökulsdóttur að vopni. „Elísabet hefur skrifað mikið um tíðina og við fókuserum á ljóðaheim hennar og örsögur. Hún skrifar mikið um ástina og holuna innra með okkur sem við reynum að fylla með ást og tengingum við aðra manneskju,“ lýsir Charlotte.



Leikið og sungið af list.
Charlotte og leikhópurinn sem þau Albert Halldórsson, Guðmundur Ingi Þorvaldsson, Halldóra Rut Baldursdóttir og Laufey Elíasdóttir skipa, hafa samið lög undir öruggri stjórn Helga Svavars Helgasonar. Leikararnir spila líka undir á hin ýmsu hljóðfæri að sögn Charlotte. „Sumir hafa þurft að endurvekja tónlistarkunnáttuna sem þeir bjuggu yfir sem krakkar,“ segir hún hlæjandi. „Við erum búin að leika okkur mikið og ég vona að það skili sér til áhorfenda. Það er stutt í húmorinn í verkum Elísabetar, þar er leikur og við tengjum hennar heim við okkar leikhúss- og kabarettheim. Samt er alltaf dýpt í ljóðum hennar líka, eins og vera ber þegar ástin er til umfjöllunar. Ástin er svo flókið fyrirbæri.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.