Bensínsprengju varpað á hús Suu Kyi Atli Ísleifsson skrifar 1. febrúar 2018 08:57 Aung San Suu Kyi var ekki heima þegar árásin var gerð. Vísir/AFP
Bensínsprengju var varpað á heimili Aung San Suu Kyi, leiðtoga Mjanmar, við Inyavatn í Rangoon í morgun. Frá þessu greinir talsmaður stjórnar landsins. Suu Kyi var ekki heima þegar árásin var gerð. „Þetta var bensínsprengja,“ segir talsmaðurinn Zaw Htay, en áður höfðu upplýsingar verið á reiki um hvers lags sprengju hafi verið um að ræða. Atburðir sem þessir eru mjög óalgengir í landinu og hafa engar upplýsingar komið fram um ástæður árásarinnar. Suu Kyi hefur sætt mikilli gagnrýni að undanförnu, ekki síst vegna þess hvernig hún hefur staðið að málum þegar kemur að ástandinu í Rakhine-héraði. Nokkur hundruð þúsund Rohingja hafa flúið héraðið síðustu mánuði eftir ofsóknir hersins. Baráttukonan og Nóbelsverðlaunahafinn Suu Kyi var um árabil haldið í stofufangelsi af herforingjastjórn landsins, en eftir lýðræðisumbætur síðustu ára varð hún gerð að leiðtoga landsins. Vegna sérstakra reglna sem settar voru á hernum getur Suu Kyiekki orðið forseti landsins. Hún gegnir hins vegar embætti ríkiskanslara, sem gerir hana í reynd að leiðtoga landsins.
Mjanmar Mest lesið Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Fleiri fréttir Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Sjá meira