Slæmur lokadagur hjá Valdísi í Suður-Afríku Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 10. mars 2018 13:02 Valdís Þóra Jónsdóttir. LET/Tristan Jones
Valdís Þóra Jónsdóttir var í toppbaráttu á Investec golfmótsins sem fram fer í Suður-Afríku fyrir lokahringinn sem var spilaður í dag. Skagamærin átti ekki góðan dag í dag en hún féll úr 4. sætinu og niður í það 21. - 26. Mótið er hluti af Evrópumótaröðinni, sterkustu atvinnumannamótaröð Evrópu. Hún byrjaði daginn á tveimur skollum á 2. og 3. holu. Hún vann sig til baka með fugli á 5. holu en tapaði aftur höggi á þeirri níundu með öðrum skolla. Tveir skollar til viðbótar á seinni níu holunum skiluðu Valdísi í hús á fjórum höggum yfir pari og því samtals á þremur höggum yfir pari í mótinu. Heimakonan Ashleigh Buhai fór með sigur í mótinu en hún spilaði hringina þrjá frábærlega, fór fyrsta hringinn á þremur höggum undir pari, var einu höggi undir pari á öðrum hring og kláraði leik í dag á fimm höggum undir pari og var því samtals á níu höggum undir pari. Hún fór lokahringinn í dag án þess að fá einn einasta skolla í brautinni.
Golf Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Þjálfari Hákons grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira