Tekin hefur verið ákvörðun um að veita ekki Nóbelsverðlaun fyrir bókmenntir í ár. Þess í stað verða tveir höfundar verðlaunaðir á næsta ári. Þetta er niðurstaða Sænsku akademíunnar sem fundaði í dag. Það hefur ekki blásið byrlega um nefndina á síðustu misserum en greint var frá því um miðjan aprílmánuð að aðalritari hennar hafi hætt störfum.
Ástæðu afsagnarinnar má rekja til þess að eiginmaður eins meðlims nefndarinnar var sakaður um kynferðislega áreitni. Akademían, sem veitir Nóbelsverðlaun í bókmenntum ár hvert, hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir viðbrögð sín í málinu en eiginmaðurinn sem um ræðir, Jean-Claude Arnault, var mikill áhrifamaður í sænsku bókmenntalífi. Eftir að málið kom upp hættu þrír meðlima akademíunnar eftir að nefndin kaus gegn því að víkja Katarinu Frostenson, eiginkonu Arnaults úr nefndinni. Í kjölfarið sagði síðan aðaritari akademíunnar, Sara Danius, af sér og þá hætti Katarina Frostenson einnig
Málið er sagt hafa alvarleg áhrif á störf nefndarinnar, svo alvarleg að hún treystir sér ekki til að veita bókmenntaverðlaunin í ár eins og greint er frá á vef Aftonbladet.
Sjá einnig: Aðalritari sænsku Nóbelsnefndarinnar hættir
Í fréttatilkynningu frá nefndinni segir að hún meti það sem svo að hún sé rúin trausti. Nefndin þurfi að nýta næstu mánuði til að ná vopnum sínum og ekki síst auka tiltrú heimsbyggðarinnar á starfi nefndarinnar. Haft er eftir starfandi aðalritara nefndarinnar, Anders Olsson, að þessi ákvörðun sé ekki síst tekin með heiður verðandi handhafa í huga.
Afar sjaldgæft er að verðlaunin falli niður en það gerðist sex sinnum á meðan heimstyrjaldirnar geisuðu, og árið 1935, þegar nefndin gat ekki komið sér saman um sigurvegara.
Í tilkynningu Sænsku akademíunnar segir jafnframt að unnið sé nú að breytingum á nefndinni, ekki síst á reglum sem lúta að skipunartíma meðlima nefndarinnar. Þeir hafa til þessa verið skipaðir ævilangt.
Deilurnar innan akademíunnar hafa aðeins áhrif á bókmenntaverðlaunin, önnur nóbelsverðlaun verða veitt eftir sem áður, enda er það í höndum annnara hópa og nefnda að velja þau.
Kazuo Ishiguro hlaut bókmenntaverðlaun Nóbels í fyrra og tónlistarmaðurinn Bob Dylan árið áður.
