Íbúðalánasjóður skoðar að kaupa íbúð í ónýtu húsi Samúel Karl Ólason skrifar 3. maí 2018 22:27 Frá Stöðvarfirði. Vísir/GVA
Íbúðalánasjóður segir að unnið sé að viðeigandi lausn í máli sem snýr að húsi á Stöðvarfirði sem sagt er óíbúðarhæft. Sjóðurinn á eina íbúð af tveimur í húsinu en í fréttum Ríkisútvarpsins var rætt við Lilju Jóhannsdóttur, sem á hina íbúðina. Hún sagði farir sínar ekki sléttar og að hún hafi þurft að flýja úr íbúðinni vegna þess að sjóðurinn vilji ekki fara í nauðsynlegar viðgerðir.Vatn og mýs hafi átt greiða leið inn í húsið í vetur. Í yfirlýsingu frá Íbúðalánasjóði segir að til hafi staðið að selja hina íbúðina en það hafi ekki gengið vegna lítils áhuga kaupenda. Hún hafi verið á sölulista í áraraðir og á meðan hafi enginn búið í henni. „Vegna bágs ástands hússins og skorts á viðhaldi býr eigandi hinnar íbúðarinnar nú við óheilsusamlegar aðstæður. Nauðsynlegt er að fara í stórfelldar viðgerðir á húsinu í heild til að það verði íbúðarhæft til lengri tíma litið. Ljóst er að báðar íbúðir eru illseljanlegar að óbreyttu,“ segir í yfirlýsingunni. Þess vegna hefur sjóðurinn nú það til skoðunar að kaupa íbúð konunnar og vonast til þess að einhver sjái sér hag í því að kaupa húsið í heilu lagi og gera það upp. Þannig fái Lilja sömuleiðis viðunandi lausn sinna mála.
Mest lesið Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Innlent Posarnir komnir í lag á ný Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Erlent Fleiri fréttir „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Sjá meira