Nýtt lag með Írafári eftir þrettán ára hlé Kristín Ólafsdóttir skrifar 2. maí 2018 15:33 Birgitta Haukdal er söngkona Írafárs. Hún er spennt fyrir afmælistónleikum sveitarinnar í júní og útgáfu nýs lags. Vísir/Anton Brink
Aðdáendur hljómsveitarinnar Írafárs hafa nú ríka ástæðu til að fagna en sveitin frumflutti nýtt lag í dag. Þrettán ár eru síðan Birgitta Haukdal og félagar hennar í Írafári gáfu út nýtt efni. Lagið, sem ber titilinn Þú vilt mig aftur, var frumflutt hjá Ívari Guðmundssyni á Bylgjunni í morgun en hlusta má á lagið í heild í spilaranum neðst í fréttinni. Birgitta Haukdal, söngkona Írafárs, og Sigurður Samúelsson, bassaleikari sveitarinnar, mættu auk þess í hljóðver í morgun og ræddu endurkomuna sem hefur verið í bígerð í nokkurn tíma.Vignir og Birgitta á sínum tíma.vísir/gva„Þetta var svo geðveikt á Þjóðhátíð og á Fiskideginum á Dalvík að ég sagði við strákana, strákar, verðum við ekki núna? Er þetta ekki tíminn?“ sagði Birgitta um aðdraganda endurkomunnar. Og tíminn var svo sannarlega runninn upp. Í byrjun apríl tilkynntu Birgitta og Vignir Snær Vigfússon, gítarleikari og annar söngvari Írafárs, um að þau væru að taka upp nýtt lag. „Við Viggi eyddum dágóðum tíma í að fara yfir demó og hittast, svo hittist hljómsveitin líka, og við ákváðum að taka upp nokkur lög,“ sagði Birgitta og bætti við að það hafi verið afar erfitt að velja eitt lag til útgáfu. Lagið sem varð loks fyrir valinu heitir Þú vilt mig aftur en um er að ræða fyrsta lagið sem sveitin gefur út í 13 ár. Írafár heldur upp á 20 ára afmæli í ár en sveitin var stofnuð árið 1998 og starfaði óslitið fram til ársins 2005. Í tilefni þess verða haldnir tvennir afmælistónleikar í Hörpu þann 2. júní næstkomandi, klukkan 19:30 og 22:30.
Tónlist Tengdar fréttir Írafár er aðalnúmerið á Þjóðhátíð Birgitta Haukdal og félagar í Írafári verða á stóra sviðinu á Þjóðhátíð í sumar. Hljómsveitin fagnar 20 ára afmæli í sumar með stórtónleikum í Hörpu. Nýstirnin Jói Pé og Króli svo og Páll Óskar eru einnig staðfestir í Dalinn. Miðasala hefst í dag. 21. febrúar 2018 05:30 Birgitta er í skýjunum með viðbrögðin: „Gleðisprengja í hjartað“ Uppselt varð á afmælistónleika Írafárs næsta sumar og þurfti að bæta við aukatónleikum. 14. desember 2017 08:30 Birgitta og Vignir baka nýtt lag með Írafár Birgitta Haukdal og Vignir Snær Vigfússon eru í hljóðveri akkúrat þessa stundina að taka upp nýtt lag með Írafár. 9. apríl 2018 16:15 Fimm hlutir sem þú vissir ekki um Birgittu Haukdal Flétturnar, vinsældir á Íslendingabók og dúkkan sem þótti ekkert líkjast henni. 14. desember 2017 20:30 Mest lesið „Þú veist þú varst að fara að reykja krakk, er það ekki?“ Lífið Halla fær að koma inn í eldhúsið tvisvar á ári Lífið Langskemmtilegast að vera alveg sama Tíska og hönnun Sýnilegri í senunni á meðgöngunni Menning Ástin blómstrar hjá Arndísi Önnu og Lindu Lífið Einn heitasti listamaður landsins heldur þræði Menning Það skrítnasta á djamminu: Amfetamín inni á klósetti og fólk að ríða Menning Segir Sinatra hafa verið „risavaxinn“ neðan beltis Lífið Skilaboð frá Höllu á Facebook upphaf að farsælu samstarfi Tíska og hönnun Taka í gegn fjölskylduhús í Eyjum með einstöku útsýni Lífið Fleiri fréttir Miley Cyrus trúlofuð Þau þykja skara fram úr í íslenskri tónlist Þau hlutu verðlaun Dags íslenskrar tónlistar Bein útsending: Hver hlýtur viðurkenningu á Degi íslenskrar tónlistar? Bjallaði í eitt virtasta tónskáld Kasakstan Patti Smith heldur tónleika í Hörpu og Hofi Reggí-risinn Jimmy Cliff allur Lifandi tónlist beint í æð allan ársins hring Hlýja og nánd heima og uppi á sviði Gæsahúð gekk á milli gesta á Stuðmönnum Lög sem mönnum yrði slaufað fyrir í dag Frumsýning á Vísi: Fögnuðu nýjum lífstíl Lítið mál að trylla lýðinn kasólétt Fagnar fimmtugsafmæli með fyrstu tónleikum Ampop í átján ár Tók málin í eigin hendur og stofnaði nýja metal-hátíð á Selfossi Una Torfa heillaði baðgesti upp úr sundskónum Áhrifamikill óður til Grindvíkinga Sjá meira
Írafár er aðalnúmerið á Þjóðhátíð Birgitta Haukdal og félagar í Írafári verða á stóra sviðinu á Þjóðhátíð í sumar. Hljómsveitin fagnar 20 ára afmæli í sumar með stórtónleikum í Hörpu. Nýstirnin Jói Pé og Króli svo og Páll Óskar eru einnig staðfestir í Dalinn. Miðasala hefst í dag. 21. febrúar 2018 05:30
Birgitta er í skýjunum með viðbrögðin: „Gleðisprengja í hjartað“ Uppselt varð á afmælistónleika Írafárs næsta sumar og þurfti að bæta við aukatónleikum. 14. desember 2017 08:30
Birgitta og Vignir baka nýtt lag með Írafár Birgitta Haukdal og Vignir Snær Vigfússon eru í hljóðveri akkúrat þessa stundina að taka upp nýtt lag með Írafár. 9. apríl 2018 16:15
Fimm hlutir sem þú vissir ekki um Birgittu Haukdal Flétturnar, vinsældir á Íslendingabók og dúkkan sem þótti ekkert líkjast henni. 14. desember 2017 20:30