Í beinni: Ólafía hefur leik á Volvik mótinu Ísak Jasonarson skrifar 24. maí 2018 13:00 Ólafía í Texas fyrr í mánuðinum. vísir/getty Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hefur leik á sínu ellefta LPGA móti á þessu tímabili í dag þegar hún mætir til leiks á Volvik mótinu sem fram fer í Ann Arbor í Michigan fylki. Ólafía Þórunn á rástíma klukkan 9:05 að staðartíma sem er 13:05 að íslenskum tíma. Hún ræsir af fyrsta teig með Svíanum Dani Holmqvist og Candie Kung frá Tævan. Íþróttamaður ársins 2017 komst ekki í gegnum niðurskurðinn á síðasta móti sem fram fór í Virginíu um síðustu helgi. Það var þó mjög tæpt á mununum og þurfti Ólafía að bíða lengi eftir fréttum um það hvort hún kæmist í gegn vegna mikilla veðurtafa. Besti árangur Ólafíu til þessa á tímabilinu kom strax á fyrsta móti mótaraðarinnar á Bahamaeyjum þar sem hún lenti í 26. sæti. Vísir fylgist vel með gangi mála hjá Ólafíu og má sjá beina textalýsingu af fyrsta hringnum hér að neðan.
Golf Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira