Menning

Íslenskir óperuhöfundar tilnefndir til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs

Kjartan Kjartansson skrifar
Hugi (t.v.) og Daníel (t.h.) eru tilnefndir fyrir óperuverk.
Hugi (t.v.) og Daníel (t.h.) eru tilnefndir fyrir óperuverk. Daníel Bjarnason/Dagur Sigurðsson
Daníel Bjarnason og Hugi Guðmundsson voru tilnefndir til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs fyrir óperuverk þeirra í dag. Verðlaunin verða afhent í október en ellefu aðrir tónlistarmenn frá Norðurlöndunum eru einnig tilnefndir.

Tilkynnt verður um sigurvegarann í Norsku óperunni 30. október þegar Norðurlandaráð þingar í Ósló. Tekur hann á móti verðlaununum sem nema 350 þúsund dönskum krónum, að því er segir í tilkynningu frá Norðurlandaráði. Verkin sem tilnefnt er fyrir verða kynnt á tónlistar- og leiklistarhátíð í Björgvin í Noregi í dag.

Daníel er tilnefndur fyrir óperuna „Bræður“ en hún byggir á samnefndri kvikmynd sem Susanne Bier leikstýrði. Óperan er samin fyrir kór, hljómsveit og taka fimm karlar og fjórar konur þátt í verkinu. Verkið verður sýnt hjá Íslensku óperunni í samstarfi við Sinfoníuhljómsveit Íslands á Listahátíð Reykjavíkur 9. júní.

„Tónlist Daníels hentar forminu frábærlega þar sem hann leikur sér með samspil einstakra radda, hljómsveitar og kórs og skapar sannfærandi heim með sinni sérstöku tónlistarrödd. Tónlist hans tekst að miðla andrúmslofti og krafti sögunnar með fjölmörgum blæbrigðum og tækni úr heimi óperunnar,“ segir í umsögn um verkið á vef Norðurlandaráðs.

Hugi er tilnefndur fyrir kammeróperuna „Hamlet in Absentia“ sem hann hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir í fyrra.

„Hugi sameinar greinilega skilgreint form og hið óhefðbundna í fylgistefum og sönglesi, aríum og kór í vægast sagt frumlegri tónlist sinni. Tónlistin fangar bæði alvöru og kímni í texta Jakobs Weiss og hljóðfærin taka undir með kórröddunum á snilldarlegan hátt. Léttri og óformlegri útsetningu óperunnar tekst að hrífa áheyrendur og halda þeim föngnum frá upphafi til enda,“ segir Norðurlandaráð um verkið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.