Jean-Pierre Bemba sýknaður af stríðsglæpum og glæpum gegn mannkyninu Vésteinn Örn Pétursson skrifar 8. júní 2018 18:26 Jean-Pierre Bemba er fyrrum varafroseti Lýðveldisins Kongó. Vísir/Getty
Áfrýjunarstig Alþjóðaglæpadómstólsins sneri í dag við dómi dómstólsins frá árinu 2016 yfir fyrrum varaforseta Lýðveldisins Kongó, Jean-Pierre Bemba. Bemba hafði áður verið fundinn sekur um stríðsglæpi og glæpi gegn mannkyninu í nágrannaríki sínu, Mið-Afríkulýðveldinu, á árunum 2002-2003.Dómstóllinn komst upphaflega að þeirri niðurstöðu að Bemba hefði ekki tekist að koma í veg fyrir að uppreisnarmenn á hans vegum dræpu og nauðguðu saklausum borgurum og var Bemba dæmdur til 18 ára fangelsisvistar. Nú hefur áfrýjunarstig dómstólsins hins vegar snúið ákvörðuninni við, eftir að belgíski dómarinn Christine Van den Wyngaert benti á að við meðferð málsins árið 2016 hefði dómstóllinn hunsað sönnunargögn þess efnis að Bemba hefði gert tilraunir til þess að stöðva glæpina þegar hann fékk veður af þeim. Máli sínu til stuðnings bentu dómararnir á að Bemba hefði ekki getað borið ábyrgð á gjörðum uppreisnarhermanna sinna, og var hann því sýknaður af ákæru á hendur honum um stríðsglæpi og glæpi gegni mannkyninu. Ákvörðunin er afar umdeild, en á sama tíma og heyra mátti gleðióp stuðningsmanna Bemba þegar dómur var kveðinn upp, hafa mannréttindasamtökin Amnesty International lýst yfir vonbrigðum sínum með dóminn og sögðu hann „mikið áfall fyrir fórnarlömb hræðilegrar herferðar nauðgana og kynferðisofbeldis.“ Bemba, sem setið hefur í fangelsi síðan 2010, þarf þó að bíða eftir frelsinu eitthvað lengur, en áfrýjunardómstóllinn sneri ekki við dómi yfir honum fyrir að hafa mútað vitnum í upphaflegri meðferð máls hans.
Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Fleiri fréttir Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Sjá meira