Ólafía lauk leik í 58. sæti eftir rólegan lokahring Ísak Jasonarson skrifar 17. júní 2018 16:45 Ólafía Þórunn um helgina vísir/getty Ólafía Þórunn Kristinsdóttir lék í dag lokahringinn á Meijer LPGA Classic mótinu sem fór fram á LPGA mótaröðinni. Ólafía lék á 71 höggi og er í 58. sæti þegar fjölmargir kylfingar eiga eftir að ljúka leik í dag. Lokahringur Ólafíu byrjaði nokkuð rólega en eftir 5 holur var hún komin með einn skolla og fjögur pör. Á sjöttu holu fékk hún svo fyrsta fugl dagsins en þurfti að bíða þar til á 15. holu þangað til sá næsti kom. Ólafía lék samtals á 6 höggum undir pari í mótinu og er sem fyrr segir jöfn í 58. sæti. Það er þriðji besti árangur hennar á tímabilinu. Lee Anne Pace er í forystu í mótinu á 18 höggum undir pari þegar efstu kylfingar mótsins eru búnir með nokkrar holur af lokahringnum.Hér er hægt að sjá stöðuna í mótinu.
Golf Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira