Guðmundur Þórður á leið á sitt 22. stórmót Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 15. júní 2018 12:30 Guðmundur Guðmundsson er aftur tekinn við íslenska landsliðinu, 17 árum eftir að hann tók fyrst við því. Vísir/Eyþór
Sigur Íslands á Litháen, 34-31, í seinni leik liðanna um sæti á HM 2019 þýðir að landsliðsþjálfarinn Guðmundur Guðmundsson er á leið á sitt 22. stórmót á ferlinum í janúar á næsta ári. Fyrsta stórmótið sem Guðmundur fór á var B-keppnin í Hollandi 1983 en þá var hann 22 ára gamall leikmaður Íslandsmeistara Víkings. Guðmundur fór á fimm stórmót til viðbótar sem leikmaður íslenska landsliðsins og var m.a. í liðinu sem vann B-keppnina í Frakklandi 1989. Guðmundur tók við íslenska landsliðinu 2001 og ári seinna stýrði hann því til 4. sætis á EM í Svíþjóð. Guðmundur stýrði Íslandi á þremur stórmótum til viðbótar áður en hann hætti eftir Ólympíuleikana í Aþenu 2004. Guðmundur fór á HM 2007 sem aðstoðarþjálfari Alfreðs Gíslasonar. Hann tók svo nokkuð óvænt við íslenska liðinu á ný vorið 2008. Þá hófst mesta blómaskeið í sögu þess. Ísland vann til silfurverðlauna á Ólympíuleikunum í Peking 2008 og bronsverðlauna á EM í Austurríki tveimur árum síðar. Guðmundur stýrði Íslandi einnig á HM 2011, EM 2012 og Ólympíuleikunum 2012. Árið 2014 tók Guðmundur við danska landsliðinu af Ulrik Wilbæk. Hann stýrði Dönum á tveimur heimsmeistaramótum, einu Evrópumóti og svo á Ólympíuleikunum 2016 í Ríó þar sem danska liðið stóð uppi sem sigurvegari. Guðmundur hætti með danska liðið eftir HM 2017 og tók því næst við Barein. Hann stýrði Bareinum á Asíuleikunum 2018 þar sem liðið vann til silfurverðlauna og tryggði sér í leiðinni sæti á HM 2019. Guðmundur afrekaði það að koma tveimur liðum á HM á næsta ári sem fer fram í Danmörku og Þýskalandi. Dregið verður í riðla í Kaupmannahöfn 25. júní næstkomandi.
HM 2019 í Frakklandi Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Körfubolti Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Sjá meira