Menning

Íslendingur valinn dansari ársins í Danmörku

Þórhildur Erla Pálsdóttir skrifar
Jón Axel í verkinu Farlige forbindelser
Jón Axel í verkinu Farlige forbindelser Vísir/Jón Axel
Jón Axel Fransson hlaut í gær verðlaun sem dansari ársins í Danmörku. Jón Axel dansar hjá Det Kongelige Teater í Danmörku og hefur gert frá árinu 2010 en hann er útskrifaður frá Konunglega danska ballettskólanum.

,,Það er risastór heiður að fá þessi verðlaun," segir Jón spurður út í verðlaunin. 

Jón segir að hann hafi fljótt heillast af dansinum. ,,Systir mín var að fara í inntökupróf og mamma mín gat ekki skilið mig eftir heima því hún var ein með tvö börn. Svo hún spurði hvort að ég vildi ekki koma með og ég sagði: nei ballett er fyrir stelpur. En hún gat ekki skilið mig eftir og setti mig í inntökupróf í Arsenal og Liverpool fötum. Mér fannst bara svo gaman af þessu og á meðan að systir mín missti áhugann og komst ekki inn, en ég komst inn og hef verið þar síðan," segir Jón Axel.

Jón Axel í verkinu Farlige forbindelserVísir/ Jón Axel

Tileinkaði afa sínum verðlaunin

Jón Axel tileinkaði verðlaunin afa sínum sem vildi alltaf dansa. „Afa langaði alltaf til þess að verða atvinnudansari. En pabbi hans sagði honum að það væri ekki hægt að sjá fyrir fjölskyldunni með því. Ég er ánægður að geta lifað þennan draum sem hann hafði og að það sé atvinna núna að geta verið dansari," segir Jón Axel.

Spurður út í komandi verkefni segir Jón að þau hafi verið að klára núna tímabil og undirbúningur fyrir það næsta taki við. „Núna vorum við að klára tímabil. Ég er að fara að dansa í sumarballett hérna í Danmörku og svo til Boston og dansa í viku þar og svo er ég kominn í sumarfrí,“ segir Jón Axel.

Frændi Jóns Axels tók við verðlaununum fyrir hans hönd en Jón Axel komst ekki vegna þess að hann var að dansa.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.