Læknir sóttur til saka vegna barnarána í valdatíð Francos Kristín Ólafsdóttir skrifar 25. júní 2018 08:02 Ínes Madrigal er formaður samtaka barnanna, sem tekin voru frá mæðrum sínum í valdatíð Francos, og aðstandenda þeirra. Vísir/AFP
Réttarhöld yfir hinum 85 ára gamla lækni Eduardo Vela, sem sakaður er um að hafa rænt nýfæddri stúlku af skjólstæðingi sínum seint á sjöunda áratugnum, hefjast í þessari viku. Vela verður þar með sá fyrsti sem svarar til saka vegna umfangsmikilla barnarána sem viðhöfð voru á Spáni í valdatíð einræðisherrans Fransiscos Francos, og einnig eftir andlát hans árið 1975. Tiltölulega stutt er síðan hulunni var svipt af ránunum en talið er að yfir þrjú hundruð þúsund börn hafi verið tekin frá mæðrum sínum, sem voru álitnar afturreka í samfélaginu vegna fátæktar, hjúskaparstöðu eða stjórnmálaskoðana sinna, og komið fyrir hjá fjölskyldum sem studdu ríkisstjórn Francos. Vela er sakaður um að hafa tekið Inés Madrigal, sem þá var nýfædd, frá blóðmóður sinni vorið 1969. Hann fól annarri konu, sem þá var á fimmtugsaldri, umsjá stúlkunnar og sú gekk Madrigal í móðurstað. Verði Vela sakfelldur á hann yfir höfði sér ellefu ára fangelsisdóm. Hann hefur m.a. verið ákærður fyrir að ræna barni, staðfesta fæðingu sem aldrei átti sér stað og skjalafals. Madrigal er nú 49 ára en hún segist hafa komist að hinu sanna um uppruna sinn þegar hún varð 18 ára. Þá hafi móðir hennar ætíð stutt hana í leitinni að blóðmóður sinni. Í frétt breska dagblaðsins The Guardian segir jafnframt að Madrigal búist ekki við því að Vela segi satt og rétt frá. „Þetta er mjög mikilvægt málefni vegna þess að í sextíu ár vorum við „barnastórmarkaður“ Evrópu og Suður-Ameríku, ekki bara Spánar,“ var einnig haft eftir Madrigal.
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira