Fugl á lokaholunni og Ólafía í góðum málum Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 22. júní 2018 19:22 Ólafía Þórunn er í eldlínunni í Arkansas vísir/getty
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir spilaði stöðugan fyrsta hring á Wallmart mótinu í Arkansas og er á tveimur höggum undir pari eftir 18 holur. Mótið er hluti af LPGA mótaröðinni. Ólafía byrjaði á tíunda teig og fékk fugl strax á sinni annari holu en svo kom skolli tveimur holum seinna. Ólafía fékk annan fugl á 18. holu, þeirri níundu sem hún spilaði, og var á einu höggi undir pari eftir fyrri níu holurnar. Hennar seinni níu holur fór hún allar á parinu nema þá síðustu þar sem hún nældi í fugl og endaði því á tveimur höggum undir pari. Þegar Ólafía lauk leik var hún jöfn í 30. sæti. Mótið er aðeins 54 holur en ekki 72 eins og vaninn er og skorið verður niður eftir annan keppnisdag á morgun. Þar sem oftast er miðað við niðurskurð við 70 kylfinga er Ólafía í ágætum séns á að komast þar í gegn. Bein útsending frá mótinu hefst á Golfstöðinni klukkan 22:30.
HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira