Kínverskur viðskiptajöfur hrapaði til dauða Stefán Ó. Jónsson skrifar 4. júlí 2018 10:30 Wang Jian stýrði einu af stærstu fyrirtækjum heims Vísir/AFP
Stjórnarformaður kínverska risafyrirtækisins HNA lést eftir fall í borginni Bonnieux í suðurhluta Frakklands. Í yfirlýsingu frá fyrirtækinu segir að um slys hafi verið að ræða og að hinn 57 ára gamli Wang Jian hafi verið í Frakklandi í viðskiptaferð. Haft er eftir frönsku lögreglunni á vef breska ríkisútvarpsins að Wang hafi dottið aftur fyrir sig þegar hann stillti sér upp á vegg fyrir myndatöku. Fallið er talið hafa verið um 15 metrar. Fjöldi vitna varð að slysinu og hafa þau útilokað að andlát hans hafi borið að með saknæmum hætti. Wang er sagður hafa leikið lykilþátt í því að gera HNA að því stórveldi sem það er, en því er lýst sem einu af stærstu fyrirtækjum heims. HNA á stóra hluti í öðrum stórfyrirtækjum: t.a.m. hótelkeðjunni Hilton, Deutsche Bank ásamt því að eiga fjölda skýjakljúfa í Lundúnum. Á heimasíðu HNA, sem er grá vegna andlátsins, er Wang minnst sem „einstaklega hæfs leiðtoga og fyrirmyndar“ og segir þar jafnframt að hugsjónir hans og gildi muni lifa áfram í hjörtum þeirra sem fengu að kynnast honum. Fyrirtækið vinnur nú í því að minnka eignasafnið sitt en það er sagt hafa safnað upp gríðarlegum skuldum meðfram miklum vexti síðustu ára.
Andlát Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Sjá meira