Fugl á flottum fyrstu níu hjá Ólafíu Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 12. júlí 2018 20:25 Ólafía Þórunn. Mynd/LPGA
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR, byrjaði Marathon Classic mótið í Ohio mjög vel og er í fínni stöðu á einu höggi undir pari eftir fyrri níu holurnar á fyrsta hring. Hringurinn byrjaði á nær fullkomnu golfi, það komu pör á fyrstu holunum þar sem Ólafía hitti braut og flatir í upplögðum höggafjölda og tvípúttaði fyrir pari, allt eftir bókinni. Ólafía einpúttaði fyrir fugli á þriðju holu og þaut upp töfluna. Næstu holur gengu hins vegar ekki eins vel og gerði Ólafía mjög vel að halda pari á þeim öllum, þurfti meðal annars að bjarga sér úr sandglompu. Hún hitti brautina í fjórum af sex teighöggum og náði inn á flöt í upplögðum höggfjölda á 6 af 9 brautum. Eftir níu holur er Ólafía í 36.-54. sæti. Skorið í mótinu er frekar hátt og eru efstu konur á 5 höggum undir pari. Ef Ólafía heldur áfram að halda parinu og jafnvel næla í einn, tvo fugla þá á hún góðan möguleika á því að blanda sér í toppbaráttuna.Skorkortið eftir fyrri níuskjáskot/lpga
Golf Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira