Veðrið býður upp á dagamun Stefán Ó. Jónsson skrifar 27. júlí 2018 07:29 Gangi spáin eftir má gera ráð fyrir fullum Austurvelli. Vísir/daníel
Austlæg eða breytileg átt og dálítil rigning um vestanvert landið í fyrstu, en það styttir upp og birtir til síðdegis. Skýjað með köflum og úrkomulítið á Suðausturlandi en þurrt og bjart norðaustantil, hiti víða 12 til 17 stig að deginum en allt að 22 stigum norðaustanlands. Veðrið í höfuðborginni verður heldur ekkert slor. Svo virðist sem það verði nokkuð léttskýjað - ef ekki bara hreinlega sólskin - allan seinni partinn. Það þykir mörgum netverjum ærið tilefni til að gera sér dagamun.Það verður svo mikið Happy hour veður á morgun að það ærir mig pic.twitter.com/HxnWMsiX6E— Anna Fríða Gísladóttir (@AnnaFridaGisla) July 26, 2018 Á vef Veðurstofunnar segir að „langt suður í hafi“ sé 994 lægð á leið til austurs, en að í nótt fari hún til norðvesturs. Það þykknar því upp og fer að rigna á morgun, fyrst suðaustantil, en þurrt verður á Vestfjörðum fram á kvöld. Hlýtt og rakt loft fylgir lægðinni og má búast við talsverða rigningu um tíma um sunnanvert landið. Útlit er fyrir að áframhaldandi austlægar áttir verði ríkjandi fram í miðja næstu viku með talsverðir rigningu á köflum, einkum á Suðausturlandi, en að það verði úrkomuminna norðvestantil.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ laugardag:Hæg austlæg átt, skýjað með köflum en dálítil væta suðaustanlands. Gengur í austan 8-15 m/s síðdegis með rigningu, talsverðri á köflum, um sunnanvert landið en úrkomuminna norðtil. Hiti 12 til 20 stig, hlýjast á Norðurlandi. Á sunnudag og mánudag:Austlæg átt 8-15 m/s og rigning, en úrkomuminna norðvestantil. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast á vestanlands. Á þriðjudag og miðvikudag:Suðaustanátt og rigning um landið sunnan- og austanvert en úrkomulítið norðvestantil. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast á Norðurlandi vestra. Á fimmtudag:Útlit fyrir vestlæga eða breytilega átt og rigning eða súld norðanlands en yfirleitt þurrt sunnantil. Hiti 9 til 16 stig, hlýjast á Suðausturlandi.
Veður Mest lesið „Þetta er mikið áfall fyrir okkur fjölskylduna“ Innlent Kourani gæti losnað eftir þrjá mánuði eftir lagabreytingu Innlent Ari missti af fyrsta fundinum Innlent Steinsofandi þegar drunurnar riðu yfir: „Er þetta kjarnorkusprengja?“ Erlent Fleiri bitnir af hundunum Innlent Nýtt og mikið golfsvæði í Hafnarfirði komið á veg Innlent Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Innlent Áttu ekki von á að þurfa að fara með málið fyrir dóm Innlent Fasteignamat lækkar að raunvirði Innlent Faldi rúmar þrjátíu milljónir í peningaskáp Innlent Fleiri fréttir Kærð fyrir að draga sér ríflega tólf milljónir úr dánarbúi Sjálfstæðismenn formenn sjö ráða af átta Baldur og Herjólfur sigla til Eyja Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Dýrum stefnt í hættu Unnur Brá sveitarstjóri í Borgarbyggð og Skorradalshreppi Beri skylda að skila Dananum hugsanlega á Þingvöllum Tímamót í borginni, innbrot í kjúklingabú og forritari á barnsaldri „Ávirðingarnar sem þetta fólk lét út úr sér eru því sjálfu til skammar“ Sumaráætlun Herjólfs frestað Leit að eftirmanni Höllu Bergþóru hafin Fær annan skóla undir sinn væng Faldi rúmar þrjátíu milljónir í peningaskáp Skjálftahrinan mallar enn Ari missti af fyrsta fundinum Kourani gæti losnað eftir þrjá mánuði eftir lagabreytingu Situr rúma viku á þingi fyrir sumarfrí „Heiður lífs míns að vera borgarstjóri“ Fordæma innbrot í Reykjabú Mun örugglega leita ráða hjá Heiðu „Greiddi smyglurum verulegar upphæðir til að komast á leiðarenda“ Ljósið fékk langtímasamning Ætlar ekki í varaformannsframboð Verði hægt að sækja um skilnað án þess að gefa upp ástæðu Yfir 70 þúsund horfðu á kappræðurnar á Sýn Áttu ekki von á að þurfa að fara með málið fyrir dóm Bein útsending: Lyklaskipti í borginni Horfði á gamla fundi til að undirbúa sig „Góður dagur fyrir nýja tíma í Reykjavík“ Fyrsti fundur borgarstjórnar, ný rannsóknarnefnd og bein Jónasar Sjá meira