Litríkur hringur hjá Valdísi á Opna breska Anton Ingi Leifsson skrifar 2. ágúst 2018 14:00 Valdís þarf að halda sömu tölu af fuglum á morgun og breyta skollunum í par, þá er hún í góðum málum. vísir/getty
Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur, átti kaflaskiptan hring er hún lék fyrsta hringinn á Opna breska meistaramótinu í Englandi. Þetta var í fyrsta skipti sem Valdís var meðal keppenda á á Opna breska en hún var þó ekki fyrst Íslendinga. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir keppti á þessu móti í fyrra. Valdís byrjaði vel. Hún fékk einn fugl og fjögur pör á fyrstu fimm holunum en sjötta og sjöunda holan reyndist Valdísi afar erfiðar. Hún fékk skolla á sjöttu holu og þrefaldan skolla á sjöundu. Hún spilaði holuna á átta höggum en hún er par. Mikill skellur fyrir Valdísi sem hafði byrjað hringinn vel. Hún endaði svo fyrri níu á tveimur pörum og byrjaði síðari níu af miklum krafti eða með tveimur fuglum. Í kjölfarið fylgdi skolli og par. Fuglar á fimmtándu, sextándu og átjándu og par á sautjándu gerðu það að verkum að Valdís endaði hringinn á einu höggi yfir pari. Hún er því í 62. sæti eftir fyrsta hringinn þegar þetta er skrifað en annar hringurinn er spilaður á morgun. Efst eru þær Sandra Gal og Mamiko Higa sem eru á fjórum höggum undir pari. Skorkort Valdísar má sjá hér að neðan.
Golf Mest lesið Vinkonur og liðsfélagar létust á leið heim af æfingu Sport Segir að sigurkarfa Elvars hafi verið ólögleg Körfubolti Allir sem hylji munninn verði reknir út af Fótbolti Skellur fyrir bankabók HSÍ Handbolti Liverpool rak sérfræðinginn sinn og þá fór allt að gerast Enski boltinn Roy Keane næstum búinn að skemma feril Heimis Fótbolti Sara og fjölskylda örugg en staðan hræðir Fótbolti „Ég hef bara miklar áhyggjur af þessu“ Enski boltinn Sjáðu hetjudáðir Sesko, hornamörk Arsenal og ófarir Tottenham Enski boltinn Búin að þríbæta þrjátíu ára met Guðrúnar Sport Fleiri fréttir Logi fékk örn eftir að hafa slegið beint í holu af 76 metra færi Gunnlaugur semur við umboðsskrifstofu Schefflers Atvinnukylfingur féll niður um lyftustokk Rory McIlroy: „Fjögur risamót er alveg nóg“ LIV fær heimslistastig þótt mótaröðin uppfylli ekki skilyrði Sjá meira