Umhverfisráðherra Frakklands hættir vegna athafnaleysis í loftslagsmálum Kjartan Kjartansson skrifar 28. ágúst 2018 13:45 Hulot tilkynnti um afsögn sína í útvarpsviðtali. Sagðist hann hafa tekið ákvörðunina á staðnum og ekki einu sinni konan hans hafi vitað af henni fyrir fram. Vísir/EPA
Nicolas Hulot sagði fyrirvaralaust af sér sem umhverfisráðherra í ríkisstjórn Emmanuels Macron, forseta Frakklands, í útvarpsviðtali í dag. Hulot vísaði til þess að ríkisstjórn Macron hefði aðeins stigið „lítil skref“ í að bregðast við loftslagsbreytingum. Gagnrýndi Hulot ríkisstjórnina fyrir að ætla að halda í kjarnorku í nýrri orkustefnu fyrir næsta áratuginn sem hún vinnur nú að. Markmið áætlunarinnar er meðal annars að draga úr notkun kjarnorku. Hulot er einnig ósáttur við að Macron hafi ekki gengið nógu hart fram gegn skordýraeitri, verndun líffræðilegs fjölbreytileika og landeyðingu. Tilkynnti hann um afsögn sína í útvarpsviðtali án þess að hafa látið Macron eða forsætisráðherrann vita um áform sín fyrir það. Sagðist Hulot hafa upplifað sig „aleinan“ í ríkisstjórninni, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC. Afsögn Hulot þykir áfall fyrir Macron, að sögn Bloomberg-fréttastofunnar. Hulot hefur verið áberandi og vinsæll umhverfisverndarsinni í Frakklandi í áraraðir og var einn þekktasti ráðherrann í ríkisstjórninni.
Loftslagsmál Umhverfismál Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Ætla að opna Bláa lónið 29. nóvember Innlent „RÚV er sá fjölmiðill sem er líklega einna lengst til vinstri á Íslandi“ Innlent Segist svikin af Viðreisn og segir sig úr flokknum Innlent Rafmagnsmastur í hættu vegna hraunflæðis Innlent Eins og að vera staddur í martröð og geta ekki vaknað Innlent Hörð viðbrögð við vaxtahækkunum Innlent Stöðugt gos og engir skjálftar Innlent Tilbúin að aflýsa verkföllum í fjórum leikskólum Innlent Eldri maður á gamalli Corollu ógnaði ekki lífi hjóna á nýjum Ram Innlent Fleiri fréttir Hakkarar komu sér fyrir í kerfum fjölda fjarskiptafyrirtækja Ákærður fyrir að nauðga og myrða þrettán ára stúlku Leita móður ungabarns sem fannst látið á víðavangi Styrkja loftvarnir Norður-Kóreu fyrir hermenn og vopn Bolsonaro og félagar kærðir fyrir valdaránstilraun Trump-liðar heita aðgerðum gegn sakamáladómstólnum Útlit fyrir að Scholz leiði flokk sinn til kosninga þrátt fyrir óvinsældir Eigandi gistiheimilis handtekinn í gengslum við metanóleitrun Kostnaðurinn við krýningu Karls konungs 13 milljarðar króna Pam Bondi kemur í stað Matt Gaetz Segir notkun eldflaugarinnar fela í sér stigmögnun átaka Bættu krakkpípu við styttu Nínu Sæmundsson í Los Angeles Gaetz ætlar sér ekki að verða dómsmálaráðherra Tóku tíu úkraínska fanga af lífi Meina fyrstu trans þingkonunni að fara á kvennaklósettið Fyrsta nærmyndin af stjörnu utan Vetrarbrautarinnar Gefa út handtökuskipun á hendur Netanjahú Fjögur ungmenni nú látin af völdum tréspírans Skutu fyrstu langdrægu skotflauginni að Úkraínu Hugmynd um banana á vegg seldist á 850 milljónir John Prescott fallinn frá Siðanefndin klofin í máli Gaetz en gögn farin að leka Høiby í vikulangt gæsluvarðhald Fara fram á tveggja vikna gæsluvarðhald yfir stjúpsyninum NATO tryggi lykilinnviði eftir ætluð spellvirki í Eystrasalti Hlaut dauðadóm fyrir að eitra fyrir fjórtán vinum með blásýru Hótar að fella stjórnina í skugga „pólitísks dauðadóms“ Mafíuforingi sækist eftir þingsæti í Dyflinni Heitir peningaverðlaunum og lausn þeim sem frelsa gísla Fyrsta trans konan á þingi sætir aðför af hálfu kollega sinna Sjá meira