Hakkarinn sem baðst vægðar dæmdur í átta mánaða fangelsi Kristín Ólafsdóttir skrifar 30. ágúst 2018 07:54 Bandaríska leikkonan Jennifer Lawrence er ein þeirra sem hakkararnir fjórir brutu á árið 2014. Vísir/getty
Hakkarinn George Garofano, sem braust inn á 240 iCloud-reikninga Hollywood-stjarna og fleira fólks og stal þaðan myndum, var dæmdur í átta mánaða fangelsi á miðvikudag. Greint var frá því fyrr í þessum mánuði að Garofano hafi beðist vægðar í dómsgögnum sem hann skilaði inn vegna málsins. Garofano, sem er 26 ára, er einn fjögurra karlmanna sem handtekinn var vegna málsins árið 2014. Málið vakti gríðarlega athygli á sínum tíma þar sem myndir úr einkasafni leikkvennanna Jennifer Lawrence, Kirsten Dunst, Kate Upton og fleiri voru gerðar opinberar á netinu. Myndirnar sýndu margar leikkvennanna naktar og sagði Lawrence á sínum tíma að nektarmyndalekinn væri kynferðisbrot.Dómur var kveðinn upp yfir Garofano á miðvikudag í borginni Bridgeport í Connecticut-ríki. Saksóknari fór fram á tíu til sextán mánaða fangelsi yfir honum en Garofano bað sjálfur um mildan fangelsisdóm, fimm mánuði að viðbættu fimm mánaða stofufangelsi, í gögnum sem hann skilaði inn til dómsins fyrir um tveimur vikum. Hann hélt því einnig fram fyrir dómi að hann hefði nú þegar tekið út refsingu fyrir gjörðir sínar og fullyrti að hann hefði bætt ráð sitt síðan myndunum var lekið. Hinir hakkararnir þrír sem handteknir voru vegna málsins hafa allir hlotið níu til átján mánaða fangelsisdóm.
Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Innlent Fleiri fréttir Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Sjá meira