Fyrrverandi forseti Argentínu ákærð fyrir spillingu Andri Eysteinsson skrifar 17. september 2018 23:01 Cristina Kirchner er sökuð um mútuþægni á valdatíð hennar og á valdatíð eiginmanns hennar. Vísir/AP
Fyrrverandi forseti Argentínu, Cristina Kirchner, sem tók við embætti af eiginmanni sínum Néstor Kirchner árið 2007 og var við völd til ársins 2015 hefur verið ákærð vegna spillingar. AP greinir frá. Gefin var út handtökuskipun á forsetann fyrrverandi og yfirvöldum heimilað að gera meira en 100 milljónir dala af fé Kirchner upptæka. Kirchner er sökuð um spillingu og mun hafa tekið við mútum frá fyrirtækjum í skiptum fyrir samninga við ríkið. Forsetinn fyrrverandi sem í dag er þingkona í öldungadeild argentínska þingsins neitar sök og segir dómarann, Claudio Bonabio, sem fyrirskipaði ákæruna vinna fyrir stjórn hins íhaldssama forseta Mauricio Macri. Staða Kirchner sem öldungadeildarþingmaður hefur í för með sér að ekki er hægt að sakfella hana nema að tveir þriðju hlutar öldungadeildarinnar heimili það.Kirchner sakar Macri um að reyna að dreifa athygli Argentínumanna frá bágu efnahagsástandi landsins. Frá embættistöku Macri 2015 hefur Kirchner ítrekað verið sökuð um fjárdrátt, peningaþvætti og aðra hvítflibbaglæpi, einnig hefur dómarinn Bonabio sakað hana um landráð í tengslum við hryðjuverkaárás í landinu árið 1994.
Argentína Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Sjá meira