Lífið

Lifði af hryðjuverkin í Útey: „Lifðum af því hann var upptekinn að skjóta aðra“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Kamzy verður í ítarlegu viðtali í Íslandi í dag á Stöð 2 í kvöld.
Kamzy verður í ítarlegu viðtali í Íslandi í dag á Stöð 2 í kvöld.
Þrátt fyrir að vera aðeins þrítug hefur Khamshajiny Gunaratnam, eða Kamzy eins og hún er alltaf kölluð, verið varaborgarstjóri Oslóar undanfarin þrjú ár. Leið hennar þangað var þó hvorki auðveld né sársaukalaus, en Kamzy er ein fjölmargra ungmenna úr ungliðahreyfingu norska Verkamannaflokksins sem voru stödd í Útey 22. júlí 2011.

Henni tókst að sleppa undan hryðjuverkamanninum Anders Behring Breivik, sem myrti alls 69 manns á eyjunni, með því að synda um 500 metra leið í land.

Heyrði lík falla til jarðar

„Ég heyrði lík falla til jarðar og ég man að strákurinn sem ég synti með, hann var að synda baksund. Hann sneri sér svo við og ítrekaði að ég ætti að synda beint áfram og horfa bara fram fyrir mig. Ég spurði hvers vegna, en hann útskýrði það ekki. Þegar við vorum komin í land útskýrði hann að þegar við vorum komin tíu metra út í vatnið hafi Breivik staðið á klettunum rétt fyrir ofan okkur og ástæðan fyrir því að við lifðum af var sú að hann var upptekinn við að skjóta krakkana sem urðu eftir,“ segir Kamzy.



Mikilvægt að læra af voðaverkunum

Hún var hér á landi um helgina í tengslum við frumsýningu nýrrar norskrar kvikmyndar um voðaverkin. Hún segir erfitt að endurupplifa atburðina á hvíta tjaldinu, en jafnframt nauðsynlegt – enda hafi norskt samfélag ekki lært nægilega af atburðunum.

Þannig kjósi Norðmenn oft að líta á voðaverkin sem einhvers konar slys eða náttúruhamfarir, frekar en að uppræta þau samfélagsmein sem sköpuðu Anders Behring Breivik.

Ítarlega verður rætt við Kamzy í Íslandi í dag klukkan 18:55, strax að loknum kvöldfréttum. Brot úr viðtalinu má sjá hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.