Skollinn á síðustu holu gæti strítt okkar konu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. september 2018 16:15 Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. Vísir/Getty
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir kláraði fyrsta hringinn á Estrella Damm Ladies Open mótinu á einu höggi yfir pari en þetta mót er hluti af LET Evrópumótaröðinni. Ólafía Þórunn fékk tvo skolla á par fjórum holum á fyrri níu en kom til baka og var komin á parið eftir tvo fugla á seinni níu. Ólafía fékk síðan skolla á síðustu holunni og endaði því á einu höggi yfir pari. Ólafía Þórunn er í 69. sæti af 108 kylfingum þegar þetta er skrifað en þó nokkrar eiga eftir að klára sinn fyrsta hring. Estrella Damm Ladies Open fer fram á vegum Golf Club de Terramar klúbbsins en völlurinn er í Sitges sem er rétt hjá Barcelona. Ólafía Þórunn er með keppnisrétt á bæði á LET Evrópumótaröðinni og á LPGA mótaröðinni í Bandaríkjunum. Ólafía hefur keppt á þremur mótum á tímabilinu 2018 á LET Evrópumótaröðinni. Hún keppti síðast í byrjun september á Lacoste Ladies Open de France á LET Evrópumótaröðinni. Þar endaði Ólafía Þórunn í 11. sæti. Ólafía Þórunn er í 76. sæti á stigalista mótaraðarinnar. Hér fyrir neðan má sjá skorkortið hennar í dag. Samkvæmt skráningu á úrslitasíðu LET þá hóf Ólafía Þórunn leik á níundu holu en endaði á áttundu holu.
Golf Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Hjörvar gaf goðsögninni búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira