Opinbera rússneska njósnara Samúel Karl Ólason skrifar 4. október 2018 12:15 Við komuna til Hollands tók starfsmaður sendiráðs Rússlands á móti þeim. Hér er hins vegar verið að vísa þeim úr landi. AP/Varnarmálaráðuneyti Hollands
Löggæslu- og öryggisstofnanir Hollands hafa nafngreint og birt myndir af fjórum rússneskum mönnum sem þeir segja vera útsendara leyniþjónustu rússneska hersins, GRU. Mennirnir eru sakaðir um að hafa gert tölvuárás á Efnavopnastofnunina, OPCW, í apríl, en Hollendingum tókst að koma í veg fyrir að árásin heppnaðist, með aðstoð Breta. OPCW hefur meðal annars komið að rannsókninni á Skripal-eitruninni, þar sem Rússar eru sakaðir um að hafa beitt taugaeitrinu Novichok til að ráða fyrrverandi njósnarann Sergei Skripal af dögum í byrjun mars. OPCW var einnig að rannsaka efnavopnaárásina á Douma á þeim tíma. Stjórnarher Bashar al-Assad, forseta Sýrlands, hefur verið sakaður um að framkvæma árásina en Rússar hafa sakað breta um að sviðsetja hana.Skýr skilaboð „Þessi aðgerð gegn OPCW er óásættanleg,“ sagði Ank Bijleveld-Schouten, varnarmálaráðherra Hollands, á blaðamannafundi nú í morgun. „Með því að opinbera aðgerðir Rússa erum við að senda skýr skilaboð: Rússland verður að hætta þessu.“Peter Wilson, sendiherra Breta í Hollandi, sló á svipaða strengi og sagði að GRU gæti einungis „unnið í skugganum“. Með því að varpa ljósi á aðgerðir þeirra væri hægt að koma í veg fyrir aðgerðir þeirra.Fyrr í morgun höfðu yfirvöld Bretlands sakað Rússa um fjórar umfangsmikla tölvuárásir gegn fyrirtækjum í bæði Rússlandi og Úkraínu, gegn Demókrataflokknum í Bandaríkjunum og sjónvarpsstöð í Bretlandi.Frétt Sky um ásakanir Breta í morgun.Theresa May og Mark Rutte, forsætisráðherrar Bretlands og Hollands, sendu frá sér sameiginlega tilkynningu í morgun þar sem þau segja aðgerðirnar sýna fram á skeytingarleysi GRU fyrir alþjóðareglum og viðmiðum sem ætlað er að vernda heiminn.Lögðu sérútbúnum bíl við höfuðstöðvar OPCW Ank Bijleveld sagði í morgun að mönnunum fjórum hefði verið vísað úr landi og þeir tilheyrðu allir sveitinni Sandworm, sem er sérstök sveit hakkara innan GRU. Hald var lagt á allan búnað þeirra. Þar á meðal fartölvur og síma. Samkvæmt Hollendingum ferðuðust mennirnir fjórir, sem heita Alexei Morenetz, Yevgeny Serebriakov, Oleg Sotnikov og Alexei Minin, til Hollands frá Moskvu þann 10. apríl með opinberum vegabréfum. Þann 13. apríl lögðu þeir bíl, sem hafði verið útbúinn sérstökum tölvuárásabúnaði, fyrir utan höfuðstöðvar OPCW.Búnaðurinn í bíl mannanna.AP/Varnarmálaráðuneyti HollandsÍ bílnum var sérstakt loftnet sem mennirnir notuðu til að reyna að ná lykilorðum að innra neti OPCW. Skömmu áður hafði GRU reynt að komast inn í kerfi OPCW með svokölluðum „spearphishing“ árásum. Þær felast í því að senda tölvupósta á fólk, sem látnir eru líta út fyrir að koma frá stofnunum eða fyrirtækjum og fá fólk til að gefa upp lykilorð sín. Árásin á Demókrataflokkinn, í aðdraganda forsetakosninganna í Bandaríkjunum 2016 var framkvæmd með slíkum hætti. Þegar mennirnir fjórir voru handsamaðir reyndu þeir að eyðileggja síma sem þeir voru með en án árangurs. Rannsókn sýndi að einn síma þeirra hafði fyrst verið gangsettur í höfuðstöðvum GRU. Það uppgötvaðist með því að finna fyrsta símasendinn sem síminn tengdist. Mennirnir voru einnig með tuttugu þúsund evrur og tuttugu þúsund dali í reiðufé. Þar að auki fannst kvittun í rusli þeirra sem mennirnir höfðu fengið hjá leigubílstjóra í Moskvu. Hún sýndi að þeim hafði verið ekið frá höfuðstöðvum GRU til flugvallarins í Moskvu.Kvittunin sem fannst í fórum mannanna.Vísir/Dómsmálaráðuneyti BandaríkjannaÞá fundust upplýsingar um að fartölva sem mennirnir voru með hefði einnig verið notuð í Brasilíu, Sviss og Malasíu. Tölvan var meðal annars notuð til að gera árásir á lögregluna og Ríkissaksóknara Malasíu, sem komu að rannsókninni á malasísku flugvélinni MH17 sem var skotin niður yfir yfirráðasvæði aðskilnaðarsinna í austurhluta Úkraínu. Þeir eru studdir af Rússum og hollensk rannsóknarnefnd komst að þeirri niðurstöðu að Rússar hefðu útvegað aðskilnaðarsinnunum vopnið sem notað var til að skjóta flugvélina niður. Í Sviss var tölvan notuð til árásar á tölvu Alþjóða lyfjaeftirlitsstofnunarinnar, sem hefur opinberað skipulagða lyfjanotkun rússneskra íþróttamanna. Wilson sagði ljóst að GRU ynni að því að hreinsa upp eftir yfirvöld Rússlands.Fjöldi sönnunargagna Það er afar sjaldgæft að leyniþjónustur rannsóknir sínar og aðferðir með þeim hætti sem Hollendingar hafa gert í morgun. Máli þeirra til stuðnings sýndu Hollendingar fjölda sönnunargagna. Hér má sjá áhugaverðan tísta-þráð blaðakonu BBC, sem fylgdist með blaðamannafundinum og tók myndir af sönnunargögnum Hollendinga. Vert er að taka fram að Rússar hafa þvertekið fyrir að hafa komið að öllum atvikunum hér að ofan. Skripal-eitruninni, örlögum MH17 og öllum tölvuárásunum. Í yfirlýsingu frá sendiráði Rússlands í London segir að þessar nýjustu ásakanir séu liður í alþjóðasamsæri gegn Rússlandi sem ætlað sé að draga úr trúverðugleika þeirra. Þá segir, ranglega, að ásökununum fylgi engar sannanir. Maria Zakharova, talskona Utanríkisráðuneytis Rússlands, tjáði sig um málið skömmu fyrir hádegi.Fréttin hefur verið uppfærð og myndinni af kvittuninni bætt við.The UK's "imagination has no boundaries."Russia rejects cyber attack allegations by UK and Dutch authorities, dismissing them as an "infernal perfume mix".Read about how Russian spies targeted Britain's Foreign Office: https://t.co/A36t9vVHi5 pic.twitter.com/4S2RLcxkpe— Sky News (@SkyNews) October 4, 2018
MH17 Rússland Taugaeitursárás í Bretlandi Tengdar fréttir Annar Rússinn opinberaður sem ofursti í GRU Annar mannanna sem grunaðir eru um að hafa reynt að myrða Sergei Skripal og dóttur hans Yuliu heitir raunverulega Anatoliy Chepiga og er ofursti í leyniþjónustu rússneska hersins, GRU. 26. september 2018 17:49 Skripal vildi ekki trúa því að Rússar hefðu reynt að ráða hann af dögum Honum reyndist erfitt að sætta sig við það og þrátt fyrir að hafa selt leyndarmál Rússlands til leyniþjónustu Bretlands er Skripal harður rússneskur þjóðernissinni. 2. október 2018 15:25 Pútín kallar Skripal svikara og drullusokk Vladimir Pútín, forseti Rússlands, er ósáttur við að einhverjir fjölmiðlar séu að reyna að gera einhvern mannréttindasinna úr rússneska njósnaranum fyrrverandi, Sergei Skripal. 3. október 2018 13:14 Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Innlent Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Innlent Fleiri fréttir „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Sjá meira
Annar Rússinn opinberaður sem ofursti í GRU Annar mannanna sem grunaðir eru um að hafa reynt að myrða Sergei Skripal og dóttur hans Yuliu heitir raunverulega Anatoliy Chepiga og er ofursti í leyniþjónustu rússneska hersins, GRU. 26. september 2018 17:49
Skripal vildi ekki trúa því að Rússar hefðu reynt að ráða hann af dögum Honum reyndist erfitt að sætta sig við það og þrátt fyrir að hafa selt leyndarmál Rússlands til leyniþjónustu Bretlands er Skripal harður rússneskur þjóðernissinni. 2. október 2018 15:25
Pútín kallar Skripal svikara og drullusokk Vladimir Pútín, forseti Rússlands, er ósáttur við að einhverjir fjölmiðlar séu að reyna að gera einhvern mannréttindasinna úr rússneska njósnaranum fyrrverandi, Sergei Skripal. 3. október 2018 13:14