Menning

Barnabækur veita skjól og byggja brýr

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Úti í Mýri er mjög fjölbreytt partí, segir Kristín Helga.
Úti í Mýri er mjög fjölbreytt partí, segir Kristín Helga. Fréttablaðið/Eyþór
Margt áhugavert er í boði fyrir bókelsk börn og aðra áhugasama um ungmennabækur á barnabókahátíðinni Úti í Mýri sem stendur yfir í Norræna húsinu. Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur leggur sitt til málanna.

„Ég er að dandalast úti á götu í litlu þorpi í Frakklandi,“ segir Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur þegar hún svarar símanum á miðjum miðvikudegi.

En … ætlarðu samt ekki að að taka þátt í hátíðinni Úti í Mýri í Norræna húsinu um helgina?

„Jú, ég flýg heim í fyrramálið og lendi hlaupandi. Veistu, þetta símtal bjargar mér frá mistökum, ég var að kíkja hérna í búð, þetta var algerlega það sem ég þurfti. Hvað ertu að spekúlera?“

Mig langar að vita hvað þú ætlar að boða á barnabókmenntahátíðinni.

„Já, Úti í Mýri er mjög fjölbreytt partí. Ég held að mín aðkoma að því snúist aðallega um þau stóru mál sem eru í deiglunni, hlýnun jarðar og flóttafólkið sem er að flýja styrjaldir,“ segir Kristín Helga. Hún kveðst taka þátt í þremur dagskrárliðum. Sá fyrsti verður rétt fyrir hádegi á föstudag og hverfist um náttúruna hér í norðrinu og vistrýni í barnabókmenntum. „Það verður pallborð þar sem Margrét Tryggvadóttir stýrir umræðum og Dagný Kristjánsdóttir, Aðalsteinn Ásberg, Hjörleifur Hjartarson og ég munum ræða um hvort samfélagsmál, sem brenna á umhverfinu hverju sinni, eigi erindi í barnabókmenntir. Svarið við því er auðvitað já og ég held að við höldum áfram þaðan. Það er spennandi.“

Mín aðkoma snýst aðallega um þau stóru mál sem eru í deiglunni, segir Kristín Helga.Fréttablaðið/Eyþór
Annað giggið hennar Kristínar Helgu verður með rit-og myndhöfundinum Marit Törnqvist sem segir frá störfum sínum með flóttabörnum. „Við ræðum svolítið um pólitík í barnabókmenntum, hvað má og hvað má ekki. Hvernig barnabækur geta veitt skjól og byggt brýr milli ólíkra menningarheima.

Á laugardaginn verðum við Áslaug Jónsdóttir rithöfundur og myndlistarmaður saman og tölum um bækurnar okkar sem tilnefndar eru til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs, Skrímsli í vanda og Vertu ósýnilegur – flóttasaga Ishmaels. Sú síðarnefnda er kannski sú bók mín sem er hvað næst mér en samt lengst frá mér. Hún á svo mikið erindi við samtímann og ég vil að hún sé lesin í menntaskólum og grunnskólum landsins, málstaðarins vegna og til að skapa umræður.“

Þú verður sem sagt ekkert á léttu nótunum að þessu sinni. 

„Nei, það verður engin Fía Sól með mér í för. En hún spriklar í prentsmiðjunni núna og ég hlakka mjög til að hitta hana aftur. Það er glæný bók að gubbast út úr vélunum í Þýskalandi, hún heitir sko Fía Sól gefst aldrei upp, það er bara stelpu­styrkur alla leið – og stráka. Hún er reyndar að glíma við stóru málin líka en á sinni línu og á sinn hátt.“

Jæja, nú ætla ég ekki að eyðileggja frekar fyrir þér Frakklandsferðina.

„Blessuð góða, ég er að ráfa hér um í rigningu að leita að bar. Þetta er nauðaómerkilegt ferðalag.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.