Umfangsmesta mál sinnar tegundar á sviði meðhöndlara Gunnþórunn Jónsdóttir skrifar 20. október 2018 07:00 "Við höfum samúð með þessum konum og vonum að réttlæti náist í þessu máli,“ segja Osteópatafélag Íslands og Sjúkranuddarafélag Íslands um málið..
Osteópatafélag Íslands og Sjúkranuddarafélag Íslands segja félagsmenn í gegnum tíðina hafa heyrt sögur af meðhöndlaranum sem hefur verið kærður nokkrum sinnum á árinu fyrir kynferðisbrot í meðferð. „Þessi félög finna sig knúin til að tjá sig um málið og verja sína félagsmeðlimi. Meðlimir innan allra félaganna hafa heyrt fjöldann allan af sögum frá skjólstæðingum sínum um óeðlilega starfshætti frá þessum manni. Við höfum fengið til okkar fólk sem hafa leitað álits um það hvort aðferðir sem hann beitir þyki eðlilegar. Við fordæmum svona starfsaðferðir,“ segja félögin tvö. Félögin segja það alvarlegt að ekkert eftirlit sé með starfsemi utan heilbrigðisgeirans. Leið vanti til að tilkynna aðila sem ekki heyra undir nein félög. Maðurinn sé ekki meðlimur í ofantöldum félögum. „Að okkar mati er hér um að ræða mjög alvarlegt mál og umfangmesta sinnar tegundar á sviði meðhöndlara hér á landi. Við höfum samúð með þessum konum og vonum að réttlæti náist hjá þeim.“ Sigrún Jóhannsdóttir, ,ögmaður og réttargæslumaður kvennanna. Egill Þorsteinsson, formaður Kírópraktorafélags Íslands, segir meðlimum félagsins brugðið vegna málsins. „Stétt kírópraktora er slegin yfir þessum fréttum. Maður sá sem kærður er, hefur ekki menntun kírópraktors, er ekki meðlimur í Kírópraktorafélagi Íslands og tengist ekki stétt kírópraktora á nokkurn hátt.“ Maðurinn hefur verið kærður fyrir kynferðisbrot gegn nokkrum konum sem voru í meðferð hjá honum en hann á meðal annars að hafa meðhöndlað þær í gegnum leggöng þeirra. Eftir umfjöllun Fréttablaðsins um málið á fimmtudag stigu fram fjórar konur í kjölfarið samdægurs og í gær bættust þrjár í hópinn. Samtals eru konurnar orðnar sautján. „Til mín hafa nú leitað alls sautján konur. Sjö þeirra hafa nú þegar mætt í skýrslutöku hjá lögreglunni og þrjár hafa beðið þess að gefa skýrslu síðan í apríl. Nokkrar eru að meta stöðu sína,“ segir Sigrún Jóhannsdóttir, lögmaður og réttargæslumaður kvennanna. „Frá því að fréttaflutningurinn fór af stað hafa svo sjö konur haft samband við mig til viðbótar og lýst því fyrir mér hvernig umræddur maður mun hafa brotið á þeim. Ég hef fengið nokkrar á fund til mín nú þegar en hinar koma næstu daga,“ bætir Sigrún við. Steinbergur Finnbogason, lögmaður mannsins, segir fátt annað í stöðunni en að spyrja að leikslokum. „Umræðan er að þróast og vinda upp á sig í takti við þá múgsefjun sem ég tel að stefnt hafi verið að frá upphafi. Fyrir minn skjólstæðing er fátt annað í stöðunni en að spyrja að leikslokum. Hann kemur af fjöllum en verður að treysta á faglega rannsókn og ef til vill úrskurð dómstóla. Stríðið á Alþingi götunnar er tapað eins og öll önnur í svona málum,“ segir Steinbergur. Látinn hætta í World Class eftir tæpa viku Maðurinn starfaði í stuttan tíma hjá líkamsræktarstöðinni World Class fyrir um fimm árum. Þar átti hann að meðhöndla og hnykkja viðskiptavini en var fljótlega látinn fara eftir að stöðinni barst kvörtun um kynferðislega áreitni af hálfu mannsins. Þetta staðfestir Björn Leifsson, eigandi World Class. „Þessi maður kom til okkar og það var ekki vika liðin frá því að hann hóf störf þegar við þurftum að láta hann fara vegna þessa,“ segir Björn. „Hann var því látinn fara strax.“ Konráð Valur Gíslason, einkaþjálfari hjá World Class, segir að þrjár konur hafi sagt sér frá slíkri meðferð hjá manninum. „Þetta kom upp þegar ung stúlka, um 16-17 ára, var í meðferð hjá honum þegar hann starfaði hjá World Class. Eftir meðferðina sagði hún kærasta sínum frá sem hringdi hingað inn og kvartaði yfir manninum,“ segir Konráð. „Ég vissi af þremur konum í þjálfun hjá mér sem höfðu farið til hans og lent í einhverju misjöfnu.“
Birtist í Fréttablaðinu Lögreglumál Mál Jóhannesar Tryggva Sveinbjörnssonar Tengdar fréttir Þykir alvarlegt að maðurinn sé enn að störfum Karlmaður sem vinnur með einstaklinga sem glíma við stoðkerfisvanda hefur verið kærður nokkrum sinnum á þessu ári fyrir kynferðisbrot í starfi. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu staðfestir að þrjú mál séu til rannsóknar. 18. október 2018 07:30 Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira
Þykir alvarlegt að maðurinn sé enn að störfum Karlmaður sem vinnur með einstaklinga sem glíma við stoðkerfisvanda hefur verið kærður nokkrum sinnum á þessu ári fyrir kynferðisbrot í starfi. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu staðfestir að þrjú mál séu til rannsóknar. 18. október 2018 07:30