Lífið

Sóley og Aart selja hæðina við sjávarsíðuna í Vesturbænum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Falleg eign á frábærum stað.
Falleg eign á frábærum stað.
Hjónin Sóley Tómasdóttir og Aart Schalk hafa sett hæð sína við Hofsvallagötu á söluskrá en ásett verð er tæplega áttatíu milljónir.

Sóley greinir frá þessu á Facebook síðu sinni en eignin er nú í útleigu en í eigu þeirra hjóna.

Um er að ræða bjarta og vel skipulögð sex herbergja íbúð á fyrstu hæð með sérinngangi í góðu fjórbýlishúsi nærri sjávarsíðunni í Vesturbænum.



Í íbúðinni eru fjögur rúmgóð og björt svefnherbergi, þar af eitt með austursvölum. Opið er milli stofu og borðstofu og útgengt á suðursvalir.

Húsið var byggt árið 1951 en fasteignamat eignarinnar er rúmlega sextíu milljónir.

Hér að neðan má sjá myndir af eigninni:

Fallegt hús á besta stað.
Stór stofa þar sem opið er á milli borðstofu og setustofu.
Smekklegt eldhús.
Baðherbergið fallegt á Hofsvallagötunni.
Útsýni út að Ægisíðu.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.