Heimsmeistarinn í skák segir að konur hati sig Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. nóvember 2018 15:00 Magnus Carlsen. Vísir/Getty
Norski skákmeistarinn Magnus Carlsen er mættur enn á ný á stóra sviðið til að verja heimsmeistaratitilinn sinn í skák. Magnus Carlsen vann heimsmeistaratitilinn fyrst árið 2013 og hefur haldið honum síðan. Hann varði hann bæði árið 2014 og árið 2016. Carlsen mætir að þessu sinni Bandaríkjamanninum Fabiano Caruana í úrslitaeinvíginu um heimsmeistaratitilinn. Magnus Carlsen mætti á blaðamannafund í tilefni af úrslitaeinvíginu sem fer fram í London í Englandi að þessu sinni. Magnus Carlsen svaraði vissulega einhverjum skákspurningum á fundinum en það var svar hans við spurningu um einkalífið sem vakti mesta athygli.He's relaxed: Magnus Carlsen jokes 'Women hate me, I repel them' on the eve of the World Chess Championship #carlsencaruana2018https://t.co/SyrtMUsFUJ — Chessable (@chessable) November 8, 2018 Rússneskur blaðamaður spurði Magnus Carlsen nefnilega út í ástarlíf hans og fékk heldur betur sérstakt svar frá Norðmanninum þótt að langlíklegast sé að Carlsen hafi verið að grínast. „Konur hata mig og finnst ég vera ógeðslegur,“ svaraði Magnus Carlsen en sagðist þó fá stuðning frá konum annarsstaðar frá. „Mamma mín er minn besti stuðningsmaður og ég á líka fullt af vinum,“ sagði Carlsen. Úrslitaeinvígi fer fram frá 9. til 28. nóvember en Magnus Carlsen reynir þar að tryggja sér fjórða heimsmeistaratitilinn í röð.
Aðrar íþróttir Skák Mest lesið Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Fótbolti „Hefurðu enga sómakennd?“ Fótbolti Áður óbirt efni frá heimsókn landsliðsins í vinsælasta þátt Bandaríkjanna Körfubolti Ótrúlegasta stoðsending tímabilsins strax í nóvember Körfubolti Verstappen heimsmeistari fjórða árið í röð Formúla 1 Ætla flokkarnir að reisa ný heimili fyrir landsliðin? Sport Hefur Ben Simmons náð botninum? Körfubolti ÍBV kærði Hauka: „Hvernig gæti HSÍ verið annarrar skoðunar en reglurnar?“ Handbolti Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Enski boltinn Framarar sótt fjóra bita í næstu deild Íslenski boltinn Fleiri fréttir Björgvin aftur í Breiðholtið ÍBV kærði Hauka: „Hvernig gæti HSÍ verið annarrar skoðunar en reglurnar?“ Framarar sótt fjóra bita í næstu deild Áður óbirt efni frá heimsókn landsliðsins í vinsælasta þátt Bandaríkjanna Ætla flokkarnir að reisa ný heimili fyrir landsliðin? Verstappen heimsmeistari fjórða árið í röð „Hefurðu enga sómakennd?“ Hefur Ben Simmons náð botninum? Dagskráin í dag: Bland í poka úr ýmsum áttum Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Ótrúlegasta stoðsending tímabilsins strax í nóvember Russell á ráspól í fyrramálið Andy Murray þjálfar erkióvininn Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Celta sótti jafntefli gegn tíu Börsungum Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Gamla konan áfram taplaus Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Jóhann lagði upp langþráð mark Ævintýri Róberts og félaga heldur áfram Ingibjörg og Hafrún nálgast Emilíu Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Sjá meira