Birgir Leifur enn í vænlegri stöðu Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 11. nóvember 2018 13:30 Birgir Leifur Hafþórsson. Vísir/Getty
Birgir Leifur Hafþórsson lék á tveimur höggum undir pari á öðrum hring lokaúrtökumóts Evrópumótaraðarinnar í golfi í dag. Birgir Leifur byrjaði mótið mjög fel og fór fyrsta hringinn á fimm höggum undir pari. Hann er því samtals á sjö höggum undir pari eftir tvo hringi. Hringurinn í dag var nokkuð stöðugur hjá Birgi. Hann paraði 12 holur, fékk fjóra fugla og tvo skolla. Birgir lék hringinn í dag á öðrum velli en í gær, mótið er spilað á tveimur völlum á svæði Lumine golfklúbbsins á Spáni. Þegar þessi frétt er skrifuð er Birgir jafn í 25. - 34. sæti, níu höggum frá Spánverjanum David Borda sem er í forystu á 16 höggum undir pari. Efstu 25 kylfingarnir að loknum öllum sex hringjum mótsins fá þátttökurétt á Evrópumótaröðinni.
Golf Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira