Sveitin mun á tónleikunum leika þriðju breiðskífu sína í heild sinni, en á henni er einungis að finna eitt lag, 84 mínútna langt. Platan, sem kom út árið 2017, heitir Mirror Reaper og hlaut einróma lof gagnrýnenda.
Árið 2016 lést stofnmeðlimur og trommari sveitarinnar, Adrian Guerra, aðeins 36 ára að aldri. Árið áður hafði núverandi trommari sveitarinnar; Jesse Shreibman, tekið við keflinu af Guerra.
Sköpunarferli plötunnar var aðeins á byrjunarstigi þegar andlátið varð, og breytti það algjörlega sýn þeirra á tónlistina sem þeir voru að vinna að. Hljómsveitinni þótti mikilvægt að heiðra Guerra en án þess þó að hjakka í sama fari og eldra efni sveitarinnar.
Um miðbik plötunnar eru nýttar áður ónotaðar raddupptökur frá trommaranum látna, sem Dylan Desmond, hinn stofnmeðlimur tvíeykisins, vissi að hann yrði að nota á nýju plötuna í kjölfar þess að Guerra lést. Hér að neðan má hlusta á lagið.
Ásamt Bell Witch koma fram íslensku sveitirnar Heift og Vofa. Tónleikarnir eru haldnir af skipuleggjendum árlegu þungarokkshátíðarinnar Reykjavík Metalfest, en hún verður næst haldin 16. maí 2019 á Gauknum.