Handteknir fyrir að reyna að múta pappaspjaldi Vésteinn Örn Pétursson skrifar 4. janúar 2019 18:35 Skjáskot úr myndbandinu sem mennirnir tveir birtu á Facebook. Lögreglan í Vavuniya
Lögreglan í bænum Vavuniya í Srí Lanka hefur handtekið tvo menn sem birtu myndband af sér þar sem þeir annar þeirra þóttist bjóða pappaspjaldi af lögreglumanni mútur. Mönnunum tveimur, sem nú hefur verið sleppt gegn tryggingargjaldi, er gefið að sök að hafa eyðilagt almannaeigur, en lögreglan segir höfuð pappaspjaldsins hafa skaddast við verknaðinn. Þá hafa mennirnir einnig verið ákærðir fyrir að niðurlægja lögregluna og draga upp af henni slæma mynd. Mútugreiðslur til lögreglunnar vegna umferðarlagabrota eru tíð í Srí Lanka. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem mál pappaspjalda sem þessa, sem ætlað er að draga úr hraðakstri, ratar á borð lögreglunnar. Á síðasta ári voru tveir unglingar handteknir fyrir að grípa svipað spjald ófrjálsri hendi og taka með sér heim. Transparency International, óháð alþjóðasamtök gegn spillingu, sögðu í samtali við BBC að þau teldu lögregluna í Srí Lanka vera eina spilltustu stofnun landsins. „Þetta mál er enn ein sönnun skorts á vilja til að koma á fót einföldu kerfi til þess að sporna við mútugreiðslum til umferðarlögreglunnar,“ sagði Asoka Obeysekara, höfuð Transparency International í Srí Lanka. Yfirmaður umferðarlögreglunnar í landinu hefur áður lýst því yfir að verið sé að gefa ráðstafanir til þess að taka á mútuþægni lögreglumanna og hvatti almenning til þess að tilkynna þá lögregluþjóna sem þegið hafa mútur. Myndbandið má sjá hér að neðan.
Asía Srí Lanka Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Ungmenni gripin við innbrot Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira