Leikjavísir

Halda Norðurlandamót í Rainbow Six Siege

Samúel Karl Ólason skrifar
Mótið mun hefjast þann 13. janúar en úrslitakeppnin mun hefjast þann 5. mars.
Mótið mun hefjast þann 13. janúar en úrslitakeppnin mun hefjast þann 5. mars.
Leikjafyrirtækið Ubisoft ætlar að halda Norðurlandamót í leiknum Rainbow Six Siege. Í yfirlýsingu frá Ubisoft Nordic segir að fyrirtækið vilji byggja á velgengni undangenginna móta og veita spilurum vettvang til að etja kappi gegn öðrum.



Mótið mun hefjast þann 13. janúar en úrslitakeppnin mun hefjast þann 5. mars. Þar munu átta efstu liðin etja kappi og verður öllum leikjunum streymt á Twitch.



„Okkur hlakkar til að halda fyrsta opinbera Norðurlandamótið í samvinnu við ESEN. Eftir vel heppnað samstarf varðandi King of Nordic 2018, hlakkar okkur til að veita spilurum á öllum hæfileikastigum annað tækifæri til að ganga til liðs við norrænt samfélag okkar og keppa um Norðurlandatitilinn,“ segir Silvan Nikolic, frá Ubisoft Nordic.

Lið geta skráð sig til keppni hér. Frekari upplýsingar um keppnina má finna á vef Ubisoft.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.